Bjarni: Stjórnvöld of hikandi varðandi málshöfðun 12. desember 2008 10:55 Bjarni Benediktsson, formaður utanríkismálanefndar.
Þingmenn ræddu lögsóknir gegn Bretum í umræðu um störf þingsins í dag. Þar kom fram gagnrýni á þann seinagang sem mörgum finnst vera í málinu en frestur til málsókna rennur út í janúar. Bjarni Benediktsson, formaður utanríkismálanefndar, sagði að nefndin leggi á það gríðarlega áherslu að gætt verði að hagsmunum Íslendinga til þess ítrasta. Bjarni tók að hluta undir með stjórnarandstöðunni sem talaði um seinagang og aðgerðarleysi. Að hans mati hafa stjórnvöld verið of hikandi í málinu. Árni Páll Árnason, varaformaður utanríkismálanefdnar, sagði að um tvö aðskilin mál væri að ræða. Annarsvegar væri málsókn Kaupþings vegna þess tjóns sem bankinn varð fyrir þegar bresk stjórnvöld tóku yfir Singer & Friedlander. Hinsvegar sé spurningin um möguleika ríkissins á málssókn gagnvart bresku ríkisstjórninni. Bjarni Benediktson formaður nefndarinnar benti á að málið væri í höndum framkvæmdavaldsins og að nefndin hefði ekki frumkvæði í málinu. „Ég hallast að því að þetta sé fyrst og fremst málefni skilanefndanna og það sé félagannna sjálfra að gæta sinna hagsmuna, en það þarf stuðning frá stjórnvöldum," sagði Bjarni og bætti við að honum þætti of mikið hik hafa verið á stjórnvöldum í málinu. Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, sagði málið einfalt. Tíminn sé að renna út og augljóst sé að málið hafi ekki verið unnið af fullum krafti. Hann sagðist þeirrar skoðunnar að möguleikar ríkisins til málssóknar séu afar litlir. Málið sé í höndum skilanefnda Kaupþings og Landsbankans, en Landsbankinn verði að höfða mál gegn breskum yfirvöldum í ljósi þess að hryðjuverkalögum var beitt gegn honum. Hann benti á að tvær vikur væru til stefnu og það væri um stórkostlega vanrækslu að ræða renni fresturinn til málshöfðunar út án þess að gripið verði til aðgerða. Sigurður Kári Kristjánsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins tók undir með félögum sínum á þingi: „Ég vil fyrir mitt leyti leggja áherslu á að stjórnvöld geri allt sem í þeirra valdii sem tryggir að hægt verði að höfða mál gagnvart breska ríkinu." Hann segir mjög mikilvægt að höfða mál til „þess að sýna fram á að við sættum okkur ekki við að hryðjuverkalögum sé beitt. Ég tel að málshöfðun gegn þessum mönnum séu sterkustu skilaboðin um að við sættum okkur ekki við þetta."
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Fleiri fréttir Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Sjá meira