Gera athugasemd við að afnema eigi þagnarskyldu 12. desember 2008 12:10 Frá Alþingi
Stjórn Lögmannafélags Íslands lýsir yfir fyllsta stuðningi við umsögn laganefndar Lögmannafélagsins sem snýr að frumvarpi til laga um rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna og tengdra atburða. Í tilkynningu frá stjórninni segir að sérstakar athugasemdir séu gerðar við þá fyrirætlan löggjafans að afnema þagnarskyldu lögmanna. Bendir stjórnin á að þagnar- og trúnaðarmannasambandi lögmanns og skjólstæðings sé um gjörvallan heim talið meðal mikilvægustu grundvallarmannréttinda og einn af hornsteinum réttarríkisins. „Með afnámi lögbundinnnar þagnarskyldu lögmanna væri ekki aðeins very ðað gera þeim nánast ókleift að sinna starfi sínu, sem þeir hafa unnið sérstakan eið að um að sinna af bestu trúmennsku og samvisku, heldur er lögmönnum samkvæmt frumvarpinu, beinlínis gert, að viðlagðri fangelsisrefsingu í allt að 2 ár, að brjóta mannréttindi á skjólstæðingum sínum með því að skýra frá upplýsingum sem lögmenn kunna að búa yfir starfa sinna vegna," segir í tilkynningunni. Þar segir ennfremur að þessi fyrirætlan löggjafans sé sérstaklega alvarleg í ljósi hlutverks lögmanna sem verjenda sakaðra manna, enda myndi afnám þagnarskyldu gera það að verkum að íslenska ríkið bryti gegn rétti þeirra til að verjast ásökunum um refsiverð brot og með því brjóta gegn ákvæði 6.gr. Mannréttindasáttmála Evrópu þar sem sakborningum væri ekki lengur tryggð réttlát málsmeðferð fyrir dómi. „Sú stefna löggjafans sem endurspeglast í umræddu frumvarpi og sem hér er vakin athygli á er til þess fallin að ógna réttaröryggi borgaranna og vega að þeim gildum sem almmnt eru viðurkennd í lýðræðissamfélögum og skaða ímynd Íslands sem lýðræðis- og réttarríkis. Þá mun þessi breyting færa okkur marga áratugi aftur í tímann og er fullkomið stílbrot þegar horft er til annars jákvæðrar þróunar í mannréttindarmálum hér á landi síðustu áratugina."
Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Innlent Dekk sprakk við lendingu vélar Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Fleiri fréttir Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Sjá meira