Augljós pólitísk ráðning á sérkjörum Breki Logason skrifar 7. maí 2008 19:31 Dagur B. Eggertsson
Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn segir ráðningu Jakobs Frímanns Magnússonar í starf framkvæmdarstjóra miðborgar vera augljósa pólitíska ráðningu á sérkjörum. Hann segir borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins þurfa að axla ábyrgð í þessu máli þar sem borgarstjóri sitji í skjóli þeirra. „Við höfum reynt að afla okkur upplýsinga um þetta mál á síðustu dögum með nokkrum herkjum. En þetta virðist þannig vaxið að nauðsynlegt er að fá öll gögn upp á borðið," segir Dagur B. Eggertsson. Hann segir borgarstjóra nú þegar vera með aðstoðarmann og aðrar pólitískar ráðningar við hlið borgarstjóra eigi sér ekki fordæmi. „Það var auglýst eftir verkefnastjórum á skrifstofu borgarstjóra fyrir skömmu en svo virðist sem þær umsóknir hafi verið lagðar til hliðar." Aðspurður um launatölurnar sem nefndar hafa verið í þessu samhengi segir Dagur þær vera úr takti við þau kjör sem boðið hefur verið tímabundnum verkefnastjórum á vegum borgarinnar. Hann segir augljóst að um sé að ræða pólitíska ráðningu á sérkjörum. „Við munum leggja fram fyrirspurn í borgarráði á morgun varðandi þetta mál. Það var augljóst á öllum viðbrögðum Sjálfstæðismanna í gær að þeir höfðu sáralitla og sumir enga vitneskju um þetta," segir Dagur. „Þetta er ekki bara mál Ólafs F. Magnússonar borgarstjóra heldur einnig Sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Þau verða að axla ábyrgð í þessu eins og öðru þar sem borgarstjóri situr auðvitað í þeirra skjóli."
Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Erlent Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Erlent Wilhelm Wessmann er látinn Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Sækja slasaðan mann að Háafossi Innlent Fleiri fréttir Wilhelm Wessmann er látinn Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sjá meira