Öllum sjómönnum landsins boðið í partý! Breki Logason skrifar 7. maí 2008 21:42 Íslensir Sjómenn er myndabók með sögum sjómanna. „
Virðing okkar fyrir þessum mönnum sem eru fjarri fjölskyldum sínum lengst úti í ballarhafi dögunum saman er gríðarleg. Það voru einnig forréttindi að fá að kynnast þessum mönnum," segir Gústaf Hannibal Ólafsson sem býður öllum sjómönnum landsins í partý á Sægreifanum annað kvöld. Gústaf lagði af stað í ferð í vetur ásamt vini sínum Gunnari Þór Nilsen ljósmyndara þar sem þeir töluðu við sjómenn víðsvegar um landið. Og afrakstur þeirrar ferðar en nú komin út í glæsilegri bók. Bókin Íslenskir Sjómenn er myndabók með pistlum úr þessu ferðalagi þeirra félaga. „Við vildum sýna fólki hvernig sjómennskan er í dag því hún hefur breyst mikið á síðustu árum. Við vildum fanga þennan raunveruleika því það hefur ekki komið út svona bók í um þrjátíu ár," segir Gústaf en bókin er 264 síður þar sem myndirnar spila stórt hlutverk. Strákarnir sáu þann kost vænstan að fanga þennan raunveruleika með því að slást í för með sjómönnum. Fóru þeir meðal annars nokkra túra þar sem margt skemmtilegt kom í ljós. „Ég var nú reyndar sjóveikur allan tímann," segir Gústaf en sjóveiki er gerð sérstök skil í bókinni. „Þetta er allt í bókinni." Þeir Gústaf og Gunnar stofnuðu útgáfufélag í kringum þetta verkefni sem heitir Útgáfufélagið Ég og Þú og er bókarinnar að vænta í verslanir í næstu viku. „Það er hinsvegar hægt að senda tölvupóst á olibok@simnet.is og fá hana í forsölu," segir Gústaf sem blæs til heljarinnar veislu á Sægreifanum annað kvöld klukkan 18:00. „Öllum sjómönnum landsins er boðið í partý á Sægreifanum þar sem hægt verður að gæða sér á hinni margrómuðu humarsúpu og öðru fiskmeti. Það er síðan aldrei að vita nema einhverjir taki upp nikkuna og spili gömul og góð sjómannalög."
Mest lesið Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Lífið 50+: Ósjálfráða vinahreinsunin eftir fimmtugt Áskorun Fegurðardrottning drepin eða einhver myrtur á hjólhýsasvæðinu Áskorun Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn Lífið Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Tónlist Sheeran bað aðdáendur afsökunar Tónlist „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Lífið Örvar og María Elísabet nýtt listapar Lífið Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Lífið Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Lífið Fleiri fréttir Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Sjá meira