Gengið frá fiskveiðisamningi Íslendinga og Færeyinga 1. apríl 2008 19:30 Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Tórbjörn Jacobsen starfsbróðir hans í Færeyjum.
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Tórbjörn Jacobsen starfsbróðir hans í Færeyjum hittust í Þórshöfn í Færeyjum í dag til að ganga frá fiskveiðisamningi Íslendinga og Færeyinga. Samkvæmt samningnum fá færeysk skip heimild til að veiða 30 þúsund lestir af loðnu við Ísland á loðnuvertíðinni 2008/2009 svo fremi að útgefinn kvóti verði a.m.k. 500 þúsund lestir. Sé gefinn út minni kvóti fá Færeyingar 5% í sinn hlut. Þá fá Færeyingar heimild til að frysta loðnu og vinna um borð og landa loðnu til manneldis erlendis. Mega þeir þannig frysta 2/3 kvótans en þó þannig að aldrei fari meira en 1/3 kvótans til manneldisvinnslu eftir 15. febrúar. Samkomulag er um að þjóðirnar fái áfram að veiða kolmunna og norsk-íslenska síld innan lögsögu hvorrar annarrar. Hámarksfjöldi íslenskra skipa í færeysku lögsögunni hverju sinni við kolmunnaveiðar verður 12. Þegar mest sókn erlendra skipa er í færeyska lögsögu áskilja Færeyingar sér rétt, í samráði við íslensk stjórnvöld, til að takmarka fjölda skipanna enn frekar til að forðast öngþveiti á miðunum. Botnfiskveiðiheimildir Færeyinga við Ísland verða óbreyttar á árinu 2008. Færeysk skip hafa því heimild til að veiða 5.600 lestir af botnfiski á árinu. Heildarafli þorsks verður þó aldrei meiri en 1.200 lestir og lúðuafli aldrei meiri en 45 lestir sem er um helmings skerðing milli ára . Íslensk skip hafa heimild til að veiða 2.000 lestir af Hjaltlandssíld við Færeyjar og 1.300 lestir af makríl. Þá var ákveðið að fulltrúar landanna hittist á vormánuðum til að ræða sérstaklega eftirlit með veiðum í lögsögum Íslands og Færeyja. Markmið með slíkum fundi er að fara yfir framkvæmd eftirlitsins, hvernig það megi bæta og tryggja enn betur samvinnu þeirra sem því sinna. Auk þessa ræddu ráðherrarnir ýmis önnur sameiginleg hagsmunamál, m.a. samstarf innan alþjóðlegra stofnana og um nýtingu annarra sameiginlegra stofna en áður er getið. Samningurinn verður formlega staðfestur með nótuskiptum milli utanríkisráðherra Íslands og lögmannsins í Færeyjum og í kjölfarið staðfestur af Alþingi.
Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Allt að átján stiga hiti í dag Veður Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Innlent Fleiri fréttir Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Sjá meira