Leggja til ítarlegar hugmyndir til atvinnuuppbyggingar 18. nóvember 2008 16:33 Jón Steindór Valdimarsson er framkvæmdastjóri SI. MYND/Hari
Samtök iðnaðarins leggja til gjaldeyrissparnað með því að velja íslenskt, breytingar á skattamálum, auknar framkvæmdir og meiri nýsköpun ásamt sókn í menntamálum til þess að byggja aftur upp atvinnu- og efnahagslíf landsins. Samtökin unnu skýrslu um málið sem lögð var fyrir vinnuhóp á vegum ríkisstjórnarinanr sem vinnur að atvinnusköpun. Samtök iðnaðarins segja ljóst í þeim erfiðleikum sem fram undan séu að leita þurfi allra leiða til að auka útflutninstekjur, draga úr útgjöldum erlendis og koma í veg fyrir að atvinnuleysi festist í sessi og fólk flýi land. Því leggja samtökin fram hugmyndir til þess að stuðla að þessu. Samtök iðnaðarins segja miklu máli skipta að velja íslenska vöru og þjónustu því þannig megi spara milljara í gjaldeyri og fjölga störfum í íslenskum iðnaði. Taka þau sem dæmi að innlendir bjórframleiðendur geti vel annað eftirspurn og þá segja þau kaffibrennslur landsins sömuleiðis geta það. Sama eigi við um íslenskar hreinlætisvörur, húsgögn, innréttingar, bækur, föt og byggingarefni. Íslensk fyrirtæki flytji starfsemi heim Þá vilja Samtök atvinnulífsins skoða hvort íslensk fyrirtæki með framleiðslu í útlöndum geti flutt starfsemi hingað til lands og þannig skapað störf, til að mynda Össur, Marel og Actavis. Til þess að það sé hægt þurfi starfsskilyrðin hér að vera jafngóð eða betri en annars staðar. Þá vilja samtök ýmsar breytingar á skattalöggjöf og að lög verði sett strax sem heimili fyrirtækjum sem eru t.d. með a.m.k 85 prósent rekstrartekna ársins 2008 í erlendri mynt að færa ársreikning sinn frá og með þessu ári í erlendan gjaldmiðil. Stór hluti eigin fjár útflutningsfyrirtækja hverfi ef fyrirtækin geri upp í íslenskum krónum í ár. Íslendingar ferðist innanlands Þá segja samtökin nýsköpun aldrei mikilvægari en nú og vilja að sjóðurinn Frumtak verði að veruleika ásamt því að Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins fái aukið svigrúm. Enn fremur þurfi að ráðast í mannaflsfrekar framkvæmdir á vegum hins opinbera og íhuga vel að auka fiskikvóta. Enn fremur megi ná fram miklum gjaldeyrissparnaði með því að draga úr ferðalögum Íslendinga til útlanda og ferðast fremur um Ísland. Þá sé hægt að selja læknisaðgerðir til útlendinga og leggja aukna áherslu á heilsutengda ferðaþjónustu. Enn fremur sé brýnt að gera raungreinum, starfsmenntun, iðnmenntun, tæknimenntun og verkfræðimenntun, auk sölu- og markaðsfræðum hærra undir höfði. „Tómt mál er að tala um hátækni- og nýsköpunarsamfélag hér á landi ef ekki er gripið til markvissra aðgerða á þessu sviði," segir í skýrslunni.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira