Grinch er eins og stór rokksýning 21. nóvember 2008 06:30 Gervið sem Stefán notast við í sýningunni er hannað af Gunnari Karlssyni hjá Caoz.
Íslenska fyrirtækið Caoz kom að hönnun gervisins sem Stefán Karl Stefánsson notast við í leiksýningunni How the Grinch stole Christmas, eða Hvernig Trölli stal jólunum, eftir Dr. Seuss. Sýningin er nú sýnd fyrir fullu húsi í Baltimore. Sýningin hefur fengið frábæra dóma en leikarinn líkir umfanginu við stórt rokksjóv. Gagnrýnendur hafa tekið Stefáni opnum örmum í stærstu dagblöðum Baltimore og lofsungið frammistöðu hans. Leikarinn var að sjálfsögðu himinlifandi með viðtökurnar. Segir ánægjulegt hversu vel Bandaríkjamenn hafi tekið „íslenskum" Trölla. „Þetta er auðvitað amerísk klassík og fólkið þekkir verkið mjög vel," segir Stefán. Sýningin er ógnarstór að umfangi. Stefán segir að ferðast sé með hana í ellefu trukkum. Til að gefa gleggri mynd af stærðinni er bara starfsfólkið ferjað um í tveimur langferðabifreiðum. Áætlaður kostnaður við þennan „túr" er sagður vera fimm milljónir dollara. Miðað við gengi dollarans í dag eru það rúmar sjö hundruð milljónir íslenskra króna. Sýningu lýkur í Baltimore í næstu viku og fer þaðan í eitt virtasta og stærsta leikhús Boston, Citi Performing Arts Center. Ferðalaginu lýkur síðan, vonandi, á Broadway snemma á næsta ári. Stefán segir þetta mikið puð. Hann sýni fjórtán til sextán sýningar á viku og það taki mikið á. „Þetta er eins og spila tvo fótboltaleiki á dag. Það er hins vegar hugsað vel um okkur. Maður er með sinn aðstoðarmann og síðan er sérstakur kokkur sem eldar ofan í okkur." - fgg
Mest lesið Krummi kveður pabba sinn Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Joy Harmon er látin Bíó og sjónvarp „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Sjá meira