Erlent eignarhald kemur til greina 21. nóvember 2008 11:41 Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra.
Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra segir það koma til greina að erlent eignahald verði að hluta á íslensku viðskiptabönkunum í framtíðinni. Honum líst hins vegar illa á hugmyndir um sameiningu ríkisbankanna. Þetta kom fram í utandagskrárumræðu um bankamál og skilin milli eldri banka og hinna nýju á Alþingi í dag. Þar greindi Björgvin einnig frá því að til stæði að gera heildarendurskoðun á lögum um fjármálastarfsemi landsins. Álfheiður Ingadóttir, þingmaður VG, hóf umræðuna og spurði Björgvin um fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar varðandi bankamál til framtíðar á Íslandi. Hún sagði meðal annars að efnahagsreikningar viðskiptabankanna þriggja vektu upp efasemdir um það hvort þeir geti sinnt efnahagslegri skyldu sinni. Þá varaði Álheiður eindregið við þeirri stefnu að ætla að einkavæða bankana að nýju og benti hún á Svía og Norðmenn sem hefðu í svipuðum aðstæðum haldið eftir hlut í bönkunum þar í landi eftir þrengingarnar sem þau lönd gengu í gegnum fyrir nokkrum árum. Björgvin sagði rétt að skoða aðkomu erlendra aðila að bönkunum af fullri alvöru. Á því máli væru kostir og gallar og áréttari Björgvin að ekkert væri ákveðið í þeim efnum. Hann sagði það sína skoðun að einboðið væri að ríkið héldi eftir einhverjum hlut í einhverjum bankanum. „Auðvitað verður að standa allt öðruvísi að einhverskonar einkavæðingu bankanna heldur en gert var síðast," sagði Björgvin. Í umræðunni kom einnig spurning til ráðherrans hvort ekki kæmi til greina að sameina bankana þrjá enda væru þeir nú allir í eigu ríkisins. Björgvin svaraði því til að samkeppnislög hamli því og að hann myndi ekki stuðla að slíkum samruna. Þá lýsti Björgvin því yfir að til standi að endurskoða lög um fjármálastarfsemi í landinu frá grunni og fullvissaði hann stjórnarandstöðuna um að hún fengi að koma að því starfi.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira