Endurnýjað umboð nauðsynlegt 21. nóvember 2008 12:57 Katrín Júlíusdóttir.
Katrín Júlíusdóttir þingmaður Samfylkingarinnar segir, að yfirlýsingar Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur um að ótímabært sé að ræða kosningar á næsta ári, engu breyta um sína skoðun í málinu. Kjörnir fulltrúar ættu að fá umboð sitt endurnýjað í ljósi breyttra aðstæðna. „Við stöndum frammi fyrir risavöxnu verkefni hér á landi á næstunni," segir Katrín í samtali við Vísi. „Það er ekki nema eðlilegt að flokkarnir kynni fyrir landsmönnum hvernig þeir ætla að leysa úr því verkefni." Katrín er á meðal nokkurra þingmanna Samfylkingar sem hafa lýst þeirri skoðun sinni að best væri að kjósa á ný til Alþingis í vor. Aðrir sem það hafa gert eru Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Ellert B. Schram, Ágúst Ólafur Ágústsson auk ráðherranna Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra og Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra. Aðspurð hvort yfirlýsing Ingibjargar Sólrúnar breyti nokkru um hennar skoðun segir Katrín svo ekki vera. Katrín segir heldur ekkert standa í vegi fyrir því að þingmenn geti ekki unnið vinnuna sína á næstu mánuðum þó boðað verði til kosninga. Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins sagði á Bylgjunni í morgun að þau Björgvin og Þórunn ættu að segja af sér þar sem þau væru ekki tilbúin til þess að taka þátt í því uppbyggingarstarfi sem framundan sé. „Fyrir utan það umboð sem ég tel að kjörnir fulltrúar þurfi að fá endurnýjað í ljósi hinnar breyttu stöðu í þjóðfélaginu er það einnig spurningin um breytingu á stjórnarskránni vegna mögulegrar ESB aðildar sem skiptir máli í þessu," segir Katrín.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira