Hljóp framúr strákunum í pilsi 21. maí 2008 11:54 Eva í fanginu á Sigurði Smárasyni. Þau áttu bæði afmæli þennan dag. "
Pilsið var að vísu svart en ég var í bleikum sokkum. Ég fór í hlaupið með það markmið að ná besta tíma ársins hjá íslenskum konum. Það var bara svo skemmtileg tilhugsun að geta sagt frá því eftir á, að ég hafi gert það í pilsi, stóðst ekki freistinguna," segir Eva Margrét Einarsdóttir starfsmaður Glitnis en hún hljóp ásamt eiginmanni sínum Þórólfi, í Kaupmannahafnar maraþoninu síðastliðinn sunnudag. Eva ásamt Jóhönnu Eiríksdóttur en hún toppaði Evu með því að hlaupa í kjól. "Það gekk allt saman upp og ég náði fimmta besta tíma íslenskrar konu í maraþoni frá upphafi. Svo er náttúrulega sérstaklega skemmtilegt að hlaupa framúr strákunum, í pilsi." "Ég fékk ótrúlega mikið klapp, bros og hvatningu frá konunum á hliðarlínunni, gaman að geta bæði verið stelpuleg og hlaupið hratt." Hjónin á fullri ferð komin ca. 16-17 km. "Ég byrjaði að hlaupa fyrir sex árum, þegar hún Bibba vinkona mín í vinnunni hvatti mig til að prófa og kom mér af stað, síðan var ekki aftur snúið." "Ég hafði alltaf átt í vandræðum með þyngd og mataræði frá því ég var krakki, í hlaupunum fann ég það jafnvægi sem ég þurfti til að ná tökum á því," svarar Eva þegar Vísir forvitnast af hverju hún byrjaði að hlaupa maraþon. Í sigurvímu eftir hlaupið. "Ekki spurning. Það er svo einfalt að fara út að skokka, skella sér í skóna og taka smá hring. Við hjónin skiptumst á að hlaupa þegar þannig stendur á, en við hlaupum líka mikið saman, það er svona okkar tími," svarar Eva aðspurð hvort maraþonhlaup er fjölskylduvænt sport. Góð ráð fyrir fólk sem langar að byrja að skokka? "Ég myndi ráðleggja fólki að byrja rólega en setja sér engu að síður ákveðin markmið. Félagsskapurinn skiptir líka miklu máli og það fyrsta sem ég myndi gera ef ég væri að byrja núna er að finna mér skokkhóp í hverfinu og láta vaða," segir Eva.
Mest lesið „Glowie-kaflanum í lífi mínu er lokið“ Tónlist Patrick Muldoon er látinn Bíó og sjónvarp Ari Edwald selur í Garðabænum Lífið Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn Lífið Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Lífið „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Lífið Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur Lífið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Lífið Fleiri fréttir Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Sjá meira