Kvarta við kaupmenn ef þörf er á 21. maí 2008 22:15
Innflutt grænmeti er í mörgum tilfellum merkt á íslensku þannig að neytendur átta sig ekki á því að um erlenda framleiðslu er að ræða. Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vakti máls á þessu á Alþingi í dag. Hann sagði að erlent grænmeti væri skolað upp úr íslensku vatni og selt sem íslenskt grænmeti „Við könnumst við þetta í garðyrkjunni þar sem menn hafa verið að merkja þetta og gefa til kynna að þetta sé íslenskt, meðvitað og ómeðvitað," segir Þórhallur Bjarnason, formaður Sambands garðyrkjubænda. Þórhallur segir að garðyrkjumenn hafi því fundið krók á móti bragði og farið í gang með fánaröndina. Merki íslenska fánans sé sett á alla innlenda framleiðslu þannig að neytendur geti treyst því að þeir fái íslenska vöru. Þórhallur segir að fánaröndin hafi hjálpað mikið. „Við höfum ekki orðið varir við að hún væri misnotuð," segir Þórhallur. Þórhallur segist ekki kannast við það að garðyrkjubændur veigri sér við að gera athugasemdir við kaupmenn, telji þeir þess þurfa. „Við erum alveg óhræddir að gera athugasemdir ef að við teljum að verið sé að brjóta lög eða misnota fánaröndina," segir Þórhallur. Hann telur hins vegar að kaupmenn séu ánægðir með fánaröndina. „Mér sýnist þetta bara vera eitthvað sem kaupmenn vilji hafa," segir hann.
Mest lesið Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Innlent Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Erlent Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Erlent Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Innlent Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Fleiri fréttir Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Bein útsending: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Vara við aukinni hættu á gróðureldum á Austurlandi Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Dr. Bjarni er látinn Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Lögreglan á Austurlandi tók þátt í stórri alþjóðlegri lögregluaðgerð Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Daði ekki í stöðu til að meta hvaða fundir eru mikilvægari en aðrir Eyjamenn eigi Heimaklett og engin innistæða fyrir kröfum ríkisins Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Ógnaði ungmennum með hníf Karl Wernersson ákærður fyrir að leyna verðmætum listaverkum fyrir skiptastjóra Martraðakennd leigubílaferð og óvelkomin sána Þorbjörg um sérstakan saksóknara: „Gerum þennan tíma upp“ Hrærður yfir áhuga stjórnarandstöðunnar en hafði annað að gera Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Fimmtán ára piltur ók undan lögreglu um allt höfuðborgarsvæðið Reyna enn einu sinni að ræða framtíð MÍR á aðalfundi Sjá meira