Innlent

Samkeppniseftirlitið skoðar Bændasamtökin

Haraldur Bendediktsson formaður Bændasamtakana.
Haraldur Bendediktsson formaður Bændasamtakana.

Samkeppniseftirlitið hefur farið fram á það við Bændasamtök Íslands að samtökin afhendi afrit af öllum fundargerðum og þingskjölum Búnaðarþings 2008, afrit af öllum fundargerðum, samþykktum, ályktunum, sáttum, minnisblöðum og tölvupóstum sem hafa verið rituð eftir 1. september á síðasta ári.

Í bréfi Samkeppniseftirlitsins er sérstaklega vitnað í frétt sem birtist í Morgunblaðinu 7. mars síðastliðinn undir fyrirsögninni „Sátt um hækkanir nauðsynleg". Að mati Samkeppniseftirlitsins gefur fréttin til kynna að Bændasamtök Íslands og einstök búnaðar- og búgreinasamtök hafi seilst of langt í hagsmunagæslu fyrir félagsmenn sína, samkvæmt 10. og 12. grein samkeppnislaga.

Bændasamtökin hafa orðið við erindi Samkeppniseftirlitsins. Samtökin telja hins vegar að með málflutningi sínum hafi þau verið að uppfylla þá skyldu sína að gæta hagsmuna bændastéttarinnar og upplýsa neytendur um þróun í verðlagsmálum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×