Guðlaugur Þór styður Vilhjálm sem borgarfulltrúa 13. febrúar 2008 18:30
Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra styður Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson og þvertekur fyrir að vera sjálfur á leið í borgarmálin. Tveir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks sem fréttastofa náði tali af í dag vildu ekki lýsa yfir afdráttarlausum stuðningi við Vilhjálm, en hinir fjórir hafa ekki látið ná í sig í dag. Fréttastofa Stöðvar 2 hefur í allan dag reynt að ná sambandi við borgarfulltrúana sex sem sitja með Vilhjálmi í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðismanna í þeim tilgangi að spyrja þá hvort þeir treystu Vilhjálmi til að gegna embætti borgarstjóra eða styddu hann til þess. Aðeins náðist í tvo þeirra, Júlíus Vífil Ingvason og Jórunni Frímannsdóttur. Hvorugt þeirra vildi svara spurningum fréttastofu á afdráttarlausan hátt. Jórunn sagðist ekki geta tekið afstöðu til þess hvort hún styðji Vilhjálm sem borgarstjóra en til þess að svo gæti orðið þyrfti hann að njóta trausts borgarfulltrúa og almennings. Júlíus Vífill sagði hins vegar að Vilhjálmur hefði óskað eftir andrými til að hugsa stöðu sína og að hann styddi hann í því. Hann sagðist eiga von á því að Vilhjálmur myndi leita eftir samráði og samvinnu við borgarfulltrúa í sinni niðurstöðu. Aðspurður í annað sinn hvort hann treysti Vilhjálmi sagðist hann ekki geta svarað því með já-i eða nei-i. Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra var hins vegar afdráttarlaus í sinni afstöðu og sagðist styðja Vilhjálm. Hann sagði að eðlilega vildi Vilhjálmur skoða sín mál og ef hann þekkti hann rétt þá muni hann hugsa það út frá hagsmunum Reykvíkinga. Guðlaugur sagðist styðja Vilhjálm ef hann tæki þá ákvörðun að setjast í borgarstjórastólinn. ,,Hann stóð sig mjög vel sem borgarstjóri," sagði Guðlaugur. Aðspurður hvort eitthvað væri hæft í þeim orðrómi að hann sjálfur sé borgarstjóraefni Sjálfstæðismanna neitaði Guðlaugur því enda væri eðlilegast ef menn færu að leita að nýjum borgarstjóra að hann kæmi úr röðum borgarstjórnarflokks Sjálfstæðismanna.
Mest lesið „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent Kraftaverk að Gunnari hafi verið bjargað þegar hann lenti í sjónum Innlent Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Innlent Halldór Blöndal er látinn Innlent Gaf lungnadeildinni sex ferðasúrefnistæki til að þakka fyrir sig Innlent Nick Reiner ákærður fyrir að myrða foreldra sína Erlent Kveiktu á 200 kertum fyrir drengina sem hafa látist í baráttu við fíkn Innlent Kröfu um að gera Margréti arflausa vísað frá Innlent „Þessir þrír flokkar til þess að gera tómar skeljar“ Innlent Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi Innlent Fleiri fréttir Kröfu um að gera Margréti arflausa vísað frá Halldór Blöndal er látinn Kveiktu á 200 kertum fyrir drengina sem hafa látist í baráttu við fíkn „Þarna var bara verið að tikka í box“ Gaf lungnadeildinni sex ferðasúrefnistæki til að þakka fyrir sig Kraftaverk að Gunnari hafi verið bjargað þegar hann lenti í sjónum „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ „Þessir þrír flokkar til þess að gera tómar skeljar“ Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Umdeildur athafnamaður og vendingar á vinstri væng Ekki dómarans eins að meta hvort umskurn væri hættuleg Theodóra ætlar ekki fram aftur fyrir Viðreisn „Hæstvirtur yfirlætisráðherra, nei fyrirgefðu, hæstvirtur forsætisráðherra“ Lesstofu Borgarskjalasafnsins lokað Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Það hafi víst verið haft samráð við sjávarútveginn Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir „Við vitum að áföllin munu koma“ Alexandra sækist eftir oddvitasætinu Pírati skiptir um skútu og makrílsamningur fellur í grýttan jarðveg Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Æfur vegna samnings um makríl: „Skiljum vini okkar Grænlendinga eftir á köldum klaka“ Engin breyting á trúfélagsskráningu landsmanna Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Hækka hitann í Breiðholtslaug Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Sjá meira