Tillögur um Miklubraut í stokk 13. febrúar 2008 18:50
Miklabraut verður lögð í stokk milli Kringlumýrarbrautar og Snorrabrautar, samkvæmt tillögum vinnuhóps Vegagerðar og Reykjavíkurborgar, sem verið er að kynna í borgarkerfinu. Lagt er til að framkvæmdir hefjist á næsta ári og þeim verði að fullu lokið eftir sex ár.Menn hafa lengi deilt um það hvernig umferðarvandinn um þessa helstu samgönguæð Reykjavíkurverður verður best leystur til frambúðar. Hugmyndir um mislæg gatnamót hafa ýmist verið uppi á borðum eða þeim stungið oní skúffu, eftir því hver hefur verið við völd í Reykjavík. Meirihlutaskipti í borginni komu hins vegar ekki í veg fyrir að Vinnuhópur Vegagerðar og borgarinnar héldi áfram að starfa og hann hefur nú lagt fram tillögur, sem verkfræðistofan Línuhönnun og grafíkteiknarar Onnó hafa myndgert eins og hér sést.Gerð mislægra gatnamóta Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar yrðu fyrsti áfanginn í liðlega tólf milljarða króna verkefni, samkvæmt tillögunum, en efsti hlutinn yrði hringtorg. Þessi hluti verksins yrði sá langdýrasti, upp á 6,8 milljarða króna. Gatnamótin yrðu á þremur hæðum. Annar áfangi verksins felst í kaflanum um Lönguhlíð en þar lægi Miklabraut í stokki neðanjarðar og mjó húsagata ofanjarðar en hringtorg yrði á gatnamótum við Lönguhlíð og Skaftahlíð. Farið yrði í þennan áfanga á árunum 2009 til 2012. Þriðji og síðasti kaflinn yrði vestasti hlutinn að Snorrabraut en ekið yrði niður í stokkinn þar sem Miklatorg var áður. Þessi síðasti áfangi yrði unnin á árunum 2013 til 2014. Samkvæmt skýrslu vinnuhóspins, undir formennsku Jónasar Snæbjörnssonar, er arðsemi verkefnisins metin á tólf prósent.Andstaðan við mislæg gatnamót á þessum stað hefur meðal annars byggst á því hversu fyrirferðarmikil þau yrðu.
Mest lesið Komið að ögurstundu Erlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Innlent Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Erlent Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Veður Fleiri fréttir Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Kristrún kynnir planið fyrir sveitarstjórnarkosningarnar Barátta við verðbólgu, eltihrellir og brugðist við breyttri Reynisfjöru Engir glæpir á bak við aukið sírenuvæl í borginni Bæjarfulltrúa í Grindavík misboðið: „Sleppið af okkur klónum“ Gabríel Douane í síbrotagæslu: Einn handtekinna vegna líkamsárásar í mars Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Börn flytji ekki til Grindavíkur á meðan óvissa varir Sjá meira