Setur strik í kjaraviðræður ef vextir verða ekki lækkaðir á morgun 13. febrúar 2008 12:20
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að það muni setja verulegt strik í kjaraviðræður ef Seðlabankinn hefur ekki vaxtalækkunarferli á morgun. Búist er við að á fundum þeirra með fulltrúum verkalýðshreyfingarinnar síðar í dag skýrist mjög hvort samningar takist á næstu sólarhringum. Forystumenn Alþýðusambands Íslands undirbjuggu sig í morgun fyrir fundi síðar í dag með atvinnurekendum sem taldir eru geta ráðið úrslitum um hvort samningar takist á næstu dögum. Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir viðræður allar mjög brothættar og það megi voðalega lítið út af bregða til þess að upp úr slitni á milli samningsaðila. Þá eigi menn eftir að heyra í ríkisstjórninni um hvernig hún vilji nálgast samningana. Hvorki verkalýðshreyfingin né Samtök atvinnulífsins munu undirrita samninga fyrr en séð er hvert útspil stjórnvalda verður, þar á meðal Seðlabankans. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmastjóri Samtaka atvinnulífsins, bendir á að það sé vaxtaákvörðunardagur á morgun og þá sjái menn hvaða sendingu þeir fái frá Seðlabankanum. „Það er mjög mikilvægt að vaxtalækkunarferlið sé hafið. Við höfum lagt áherslu á það að vextir eftir 18 mánuði verið komnir niður fyrir þrjú prósent mun milli okkar og evrusvæðisins," segir Vilhjálmur. Ef Seðlabankinn lækki ekki vexti, haldi þeim óbreyttum eða hækki þá setji það verulegt strik í það sem samningsaðilar séu að gera. Bandalag starfsmanna ríkis og bæja sagði í gær að það væri ósvífin krafa að hið opinbera fylgdi sömu launastefnu og samið yrði um við þetta borð. Aðspurður hvort þessi yfirlýsing trufli viðræðurnar sem nú standa yfir segir Kristján Gunnarsson að forsvarsmenn verkalýðsfélaganna ætlist til þess að opinberu félögin tak á sig ábyrgð á stöðugleika. „En ég ætla ekki að semja kröfugerðina fyrir þá," segir Kristján.
Mest lesið Skotin með gúmmíkúlu í beinni frá mótmælunum Erlent Ísraelsher stöðvaði skútuna og handtók áhöfnina Erlent Sannfærð um sakleysi eiginmannsins og segir hann hetjuna sína Erlent Konan er fundin Innlent Íslendingur á válista CIA árið 1970 Innlent Newsom ætlar að kæra Trump Erlent „Erum ekki að lýsa yfir stuðningi við Trump“ Innlent Mjög áhyggjufull yfir tilfærslu ráðuneytisins Innlent Tveir sjúkrabílar kallaðir út vegna bílslyss við Mjódd Innlent Ekki hægt að nota rafræn skilríki Innlent Fleiri fréttir Ökumenn mótorhjóla greiða meira en landsbyggðin minna Ástand í Kaliforníu og breytt frumvarp um kílómetragjald Tveir sjúkrabílar kallaðir út vegna bílslyss við Mjódd Sóttu veikan sjómann Konan er fundin Slökktu eld á svölum á fjórðu hæð í Engihjalla Ekki hægt að nota rafræn skilríki Mjög áhyggjufull yfir tilfærslu ráðuneytisins Frestun fjármagns til verkmenntaskóla, mótmæli í LA og fjölmenningarhátíð Komu í veg fyrir sýruleka á Akureyrarhöfn „Erum ekki að lýsa yfir stuðningi við Trump“ Þotur notaðar í flugi Icelandair til Nuuk Íslendingur á válista CIA árið 1970 Flutningur Konukots mikið framfaraskref en skilur áhyggjur nágranna Vond stjórnsýsla að teikna bara einhverja reiti á kort Fresta uppbyggingu verkmenntaskóla: „Þessi óvissa er fyrir neðan allar hellur“ Menningarveisla í allt sumar á Sólheimum Björgunarsveit selur derhúfur í stíl Bandaríkjaforseta Alvarlegt ástand í Los Angeles og opnun nýs Konukots Eftirlýstur maður handtekinn grunaður um vændiskaup Ríkisstjóri Utah heimsækir Eyjar: Mormónarnir vissu allt um sprönguna Heilbrigðisstofnun Suðurnesja skilaði 800 milljónum til ríkissjóðs Alþjóðlegir sérfræðingar ræða baráttuna gegn myglu í Hörpu Hermenn í Los Angeles, mylguráðstefna og síðasti leikur Arons Pálmarssonar Hætta með ökuskírteini í símaveski vegna Evrópureglna Evrópusambandið, rétttrúnaður og endurskoðun veiðiráðgjafarinnar Þrír reyndu að komast undan lögreglu Jöklar hér á landi minnkað um eina Lúxemborg Sækja WorldPride í skugga bakslags í réttindum hinsegin fólks 70 milljóna króna halli vegna uppsagnar samningsins Sjá meira