Vilja 3,5 milljónir í bætur vegna umfjöllunar Kastljóss 13. febrúar 2008 11:52 Lucia Celeste Molina Sierra og Birnir Orri Pétursson vilja bætur frá Kastjósi vegna umfjöllunar um veitingu ríkisborgararéttar til Luciu. MYND/Valli
Sonur og tengdadóttir Jónínu Bjartmarz, fyrrverandi umhverfisráðherra, fara fram á að útvarpsstjóri og fjórir úr ritstjórn Kastljóss greiði sér samtals 3,5 milljónir króna í miskabætur og verði dæmd fyrir ærumeiðingar vegna umfjöllunar um ríkisborgararétt tengdadótturinnar í Kastljósi. Fyrirtaka var í meiðyrðamáli þeirra Birnis Orra Péturssonar og Luciu Celeste Molina Sierra á hendur fimmmenningunum í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Páli Magnússyni útvarpsstjóra og Kastljósfólkinu Helga Seljan, Þórhalli Gunnarssyni, Jóhönnu Vilhjálmsdóttur og Sigmari Guðmundssyni er stefnt vegna málsins. Kastljós fjallaði um það í lok apríl á síðasta ári að Lucia, sem er tengdadóttir Jónínu Bjartmarz, hefði fengið skjóta afgreiðslu á umsókn um ríkisborgararétt en Jónína sagðist ekki hafa komið nálægt afgreiðslu umsóknarinnar. Í kjölfar umfjöllunarinnar ákváðu Lucia og Birnir að leita til dómstóla með málið þar sem þau telja vegið að æru sinni. Lucia gerir kröfu um 2,5 milljónir króna í miskabætur vegna umfjöllunarinnar en Birnir Orri vill eina milljón króna. Þá krefjast þau bæði þess að fimmenningarnir verði dæmdir fyrir ærumeiðingar og brot gegn friðhelgi einkalífs og er vísað til 228 og 229. greinar hegningarlaga í því sambandi. Stefnt er að því að málflutningur í meiðyrðamálinu verði þann 18. apríl.
Mest lesið Komið að ögurstundu Erlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Erlent Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Innlent Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Veður Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Innlent Fleiri fréttir Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Kristrún kynnir planið fyrir sveitarstjórnarkosningarnar Barátta við verðbólgu, eltihrellir og brugðist við breyttri Reynisfjöru Engir glæpir á bak við aukið sírenuvæl í borginni Bæjarfulltrúa í Grindavík misboðið: „Sleppið af okkur klónum“ Gabríel Douane í síbrotagæslu: Einn handtekinna vegna líkamsárásar í mars Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Börn flytji ekki til Grindavíkur á meðan óvissa varir Sjá meira