Síðasti risaborinn að ljúka störfum 4. apríl 2008 19:14
Síðasti risaborinn við Kárahnjúka lýkur borun um miðja næstu viku og verður þá byrjað að hluta hann í sundur og undirbúa flutning úr landi. Bæjarstjóri Seyðisfjarðar kallar eftir yfirlýsingu frá ríkisstjórn um jarðgöng á Mið-Austurlandi svo forsendur skapist til að halda bornum í landinu.Borinn á nú aðeins 75 metra eftir áður þar til hann brýtur síðasta haftið. Bæjarstjórar þriggja stærstu sveitarfélaga Mið-Austurlands, ásamt austfirskum verktökum, leita nú leiða til að halda bornum eftir í landinu til að bora veggöng og hafa samgönguyfirvöld einnig komið að þeirri vinnu með því að tilnefna menn í starfsshóp. Ólafur Sigurðsson, bæjarstjóri á Seyðisfirði, segir reynsluna frá Kárahnjúkum sýna að slíkir borar séu frábær verkfæri, afkastamikil og hagkvæm. Hann segir að borinn fáist keyptur tiltölulega ódýrt en forsendan sé sú að menn sjái einhver verkefni fyrir hann. Vegagerðin undirbýr gerð sex kílómetra jarðganga milli Eskifjarðar og Norðfjarðar en Austfirðingar vilja að rykið verði dustað af fimmtán ára gömlum áformum um að tengja Neskaupstað, Seyðisfjörð og Egilsstaði með göngum um Mjóafjörð. Aðrar útfærslur sem henta myndu risabor betur hafa einnig verið til skoðunar þannig að hann gæti borað úr Eskifirði yfir í Norðfjörð, síðan í Mjóafjörð, þaðan í Seyðisfjörð og loks að Egilsstöðum nánast í einni striklotu. Ólafur bæjarstjóri segir að það sem vanti sé yfirlýsing frá ríkisstjórn um að Norðfjarðargöng verði aðeins fyrsti áfanginn. Komi slík yfirlýsing muni menn ekki hika við að stofna félag um kaup á risabornum.
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira