Innlent

Fé og fíkniefni í húsleit í Breiðholti

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á um 70 grömm af marijúana og 600 þúsund krónur í peningum í húsleit í Breiðholti í gærkvöld. Grunur leikur á að peningarnir séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Karl og kona á þrítugsaldri voru handtekin vegna rannsóknar málsins.

Þá komu fjögur önnur fíkniefnamál til kasta lögreglunnar í gær og nótt. Tveir karlar, annar á fimmtugsaldri en hinn undir tvítugu, voru handtekir í miðborginni síðdegis. Á mönnunum, sem voru báðir í annarlegu ástandi, fundust ætluð fíkniefni. Þá var tæplega þrítugur karl stöðvaður í Breiðholti í gærkvöld en sá var með marijúana í fórum sínum.

Nokkru síðar, eða um miðnætti, var karl á líkum aldri stöðvaður í miðborginni en við leit á honum fundust einnig ætluð fíkniefni. Snemma í morgun var rúmlega fertugur karl færður á lögreglustöð. Sá var líka tekinn í miðborginni með hass í fórum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×