Innlent

Tvöfalt meiri samdráttur í bílasölu en áður var gert ráð fyrir

Allt stefnir í að samdráttur í sölu nýrra bíla á þessu ári verði tvöfalt meiri en áður vart gert ráð fyrir. Formaður Bílgreinasambandsins segir að bílaumboðin séu nú þegar byrjuð að draga úr pöntunum og minnka birgðir.

Sala á bílum tók verulegan kipp upp á við í byrjun þessa árs og jókst bílasala um allt að fimmtíu prósent í janúarmánuði miðað við sama mánuð í fyrra. Í síðasta mánuði snerist dæmið hins vegar við og dróst sala þá saman um 25 prósent.

Bílasalar gera nú ráð fyrir samdrætti á næstu mánuðum og því til marks var yfirskrift aðalfundar Bílgreinasambandsins, sem haldinn var í gær, Þjónusta sem uppspretta sóknar í kreppu.

Aðspurður hvort kreppa væri fram undan sagði Egill Jóhannsson, formaður Bílgreinasambandsins, að menn yrðu að spyrja sig að því. Sambandið vilji ekki taka svo djúpt í árinni en það verði augljóslega samdráttur. Áður en árið hófst hafi verið reiknað með tíu prósenta samdrætti á árinu en mönnum sýnist núna sem hann verði 20 prósent.

Egill segir að bílasalar séu þegar byrjaðir að bregðast við samdrættinum. „Það er augljóst að við þurfum, bílaumboðin í landinu, þurfa að draga úr pöntunum og mörg þeirra hafa nú þegar byrjað fyrir kannski sex til átta mánuðum, síðan að draga úr pöntunum og minnka birgðir," segir Egill. Hann telur að það dragi úr sölunni fram á vor en á seinni hluta sumars og í haust muni salan jafna sig og koma inn á markaðinn aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×