Innlent

Funduðu með ráðherra vegna verðhækkana

Verslunarmenn mættu til fundar með viðskiptaráðherra nú skömmu fyrir hádegi en á fundinum verður meðal annars rætt um boðaðar verðhækkanir kaupmanna í kjölfar gengislækkunar krónunnar.

Það voru fulltrúar frá Samtökum verslunar og þjónustu og Félags íslenskra stórkaupmanna sem mættu til fundar með ráðherra. Kaupmenn hafa boðað verulega hækkanir á vöru og þjónustu á næstu mánuðum en á fundinum var meðal rætt hvernig finna megi leiðir til að draga úr þeim.

Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra mun í næstu viku leggja fram tillögur í ríkisstjórn hvernig hægt verður draga úr verðhækkunum en ekki liggur fyrir hvort það verður gert í samvinnu við kaupmenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×