Ekki skýr ákvæði um bann við að pissa úti á götu 16. september 2007 12:45
Í lögreglusamþykkt borgarinnar er ekki tekið sérstaklega fram að bannað sé að kasta af sér vatni úti á götu en margir hafa verið sektaðir fyrir það undanfarnar tvær helgar í miðborginni. Tuttugu og fjórir voru handteknir í nótt fyrir að haga sér illa - flestir fyrir að pissa úti á götu. Alls hafa þrjátíu og átta verið handteknir í miðborginni um helgina fyrir slík minniháttar brot. Fólkið sem var handtekið í nótt var tekið fyrir brot á lögreglusamþykkt en eins og kunnugt er hefur lögregla tekið harðar á slíkum brotum síðustu tvær helgar þar sem eftirlit hefur verið hert. Fólkið er allt sekt um svokölluð hátternisbrot og í flestum tilvikum var það fyrir að kasta af sér vatni á götum úti í miðbænum. Helmingur þeirra sem teknir voru í nótt gekkst við brotum sínum en eftir á að ræða við hinn helminginn um framhaldið. Tíu þúsund króna sekt liggur við að pissa úti á götu gangist menn strax við brotinu. Mikill mannfjöldi var í bænum að sögn lögreglu og töluverður erill en engin stórmál komu upp. Lögreglusamþykktir gilda í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Lögreglusamþykkt fyrir Reykjavíkurborg er því samin og samþykkt í borgarstjórn. Sú sem nú gildir er þriggja ára gömul og í henni er ekki tekið sérstaklega fram að bannað sé að sinna kalli náttúrunnar úti á götu. Það sem helst gæti átt við um þá athöfn er í áttundu grein en þar segir að öllum beri að gæta þess að ganga vel um á almannafæri og valda þar ekki óþrifum. Nema brotið sé á þriðju grein þar sem vísað er til þess að ekki megi sýna af sér ósæmilega háttsemi eða háttsemi sem raski allsherjarreglu.
Mest lesið Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni Innlent Sammála því að erfitt haust sé í vændum Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Fleiri fréttir Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Sjá meira