Íslendingar í samkeppni við risafyrirtæki í jarðhitaverkefnum Þórir Guðmundsson skrifar 15. október 2007 18:45
Alþjóðlegur jarðhitamarkaður vex hratt og þar ríkir mikil samkeppni. Íslensk útrásarfyrirtæki á þessum markaði eru í samkeppni við bandaríska olíurisann Chevron og önnur risastór alþjóðleg fyrirtæki. Hvað eiga George Bush Bandaríkjaforseti og friðarsúla Yoko Ono sameiginlegt. Jú, það að bæði súlan hennar Ono og heimili Bush í Texas eru knúin af jarðhita, orkulindinni sem menn eru að uppgötva á ný um allan heim af því meiri áhuga sem olíufatið verður dýrara. Árni Magnússon forstöðumaður jarðhitaverkefna Glitnis segir að um sé að ræða afar áhugaverðan markað, þó að hann sé smár í hlutfalli við markað með aðra orkugjafa. Glitnir opnaði nýlega skrifstofu í New York og þaðan selur bankinn ráðgjöf og fjármögnun á fyrirtæki í jarðhitageiranum. Bandaríkin eru langstærsti markaðurinn fyrir jarðhita - með tvisvar sinnum meiri raforkuframleiðslu með jarðhita en næsta land, sem er Filippseyjar. Mexíkó, Indónesía, Ítalía, Japan Nýjasjáland og Ísland koma þar á eftir. Fyrirtæki eins og Chevron frá Bandaríkjunum, Enel frá Ítalíu, Ormat frá Ísrael, Contact frá Nýjasjálandi berjast um bitana á þessum markaði. Samkeppnisumhverfið er hart og óvægið - fyrir fyrirtæki eins og ENEX, sem nú tilheyrir Reykjavik Energy Invest, og er með starfsemi víða um heim. Árni Magnússon segir að íslensk fyrirtæki hafi mikið fram að færa í jarðhitamálum. Á þessum markaði eru menn sammála um að samkeppnin um hæft starfsfólk sé afar hörð og að í þessum geira gildi að hafa þolinmótt fjármagn. Arður af rekstri jarðorkuvirkjana er nokkuð öruggur - útgjöldin eru mikil í upphafi og tekjurnar mjatlast inn, ekki á einhverjum 0árum heldur áratugum.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Sjá meira