Innlent

Gæsluvarðhald framlengt yfir Hringbrautarmanninum

Hringbrautamaðurinn hefur verið úrskurðaður í sex vikna gæsluvarðhald.
Hringbrautamaðurinn hefur verið úrskurðaður í sex vikna gæsluvarðhald.
Héraðsdómur Reykjavíkur framlengdi nú á fjórða tímanum gæsluvarðhaldsúrskurð yfir 38 ára gömlum manni sem grunaður er um að hafa myrt nágranna sinn á Hringbraut á sunnudag fyrir viku. Hann hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 26. nóvember eða í sex vikur. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að rannsókn málsins gangi ágætlega.

Hinn grunaði neitar sök í málinu. Hann segist hafa komið að nágranna sínum á heimili þess síðarnefnda þar sem hann lá útataður í blóði eftir fjölmörg höfuðhögg. Hann kveðst í kjölfarið hafa látið lögreglu og húsvörð hússins á Hringbraut vita. Fórnarlambið lést af sárum sínum nokkrum klukkustundum seinna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×