Ógilti flutning í starfi innan Landspítalans 15. október 2007 16:51 MYND/E.Ól
Héraðsdómur Reykjavíkur ógilti í dag þá ákvörðun forsvarsmanna Landspítalans að flytja hjúkrunarfræðing til í starfi, af geðdeild Landspítalans við Hringbraut yfir á geðdeildina á Kleppi. Héraðsdómur hafði fyrr á árinu dæmt hjúkrunarfræðingnum hálfa milljón króna í bætur vegna flutningsins en vísað frá þeirri kröfu hans að tilfærslan yrði dæmd ógild. Hjúkrunarfræðingurinn leitaði því til Hæstaréttar sem felldi frávísunina úr gildi og lagði fyrir héraðsdóm að taka málið aftur upp. Í dómnum sem féll í dag kemur fram að héraðsdómari líti svo á að krafa hjúkrunarfræðingsins um ógildingu feli ekki í sér að að hún krefjist þess að verða flutt aftur til baka á geðdeild Landspítalans við Hringbraut heldur geti hún átt aðra hagsmuni af því að fá slíkan dóm. Vísað var til dóms Héraðsdóms í málinu í vor þar sem fram hefði komið að málefnalegar ástæður hefðu ekki verið færðar fram þegar ákvörðun var tekin um að flytja konuna til í starfi og að ákvörðunin hefði verið meira íþyngjandi fyrir hana en efni stóðu til. Ákvörðunin hefði falið í sér brot gegn æru og persónu konunnar, en hún var færð til vegna ásaka samstarfsmanns um kynferðislega áreitni. Segir dómurinn í dag að þegar tekið sé tillit til þessa alls verði fallist á að ógilda þá ákvörðun að flytja konuna til í starfi.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Sjá meira