Beðið eftir því hvernig málum REI vindur fram hjá nýrri borgarstjórn 15. október 2007 12:37
Helstu eigendur Hitaveitu Suðurnesja funduðu í morgun um framtíð fyrirtækisins sem hefur verið hulin nokkurri óvissu frá því tilkynnt var um sameiningu Geysis Green Energy og Reykjavík Energy Invest. Gunnar Svavarsson, fulltrúi Hafnarfjarðarbæjar í stjórn HS, segir að beðið verði eftir því hvernig málum REI vindur fram undir stjórn nýs meirihluta í borginni áður en frekari ákvarðanir verði teknar í málinu.Fjórir stærstu eigendur Hitaveitu Suðurnesja: Reykjanesbær, Geysir Green Energy, Orkuveita Reykjavíkur og Hafnarfjarðarbær, funduðu í morgun vegna málefna REI og Geysis sem sameinuð voru í síðustu viku.Gunnar Svavarsson sagði eftir fundinn að farið hefði verið yfir þá þætti sem sneru að samrunasamkomulagi REI og þar með talið Geysi Green Energy og Orkuveituna og þá þætti sem tengjast Hitaveitu Suðurnesja.Gunnar segir óvissuna fólgna í því að tveir hluthafar í Hitaveitu Suðurnesja hafi gert með sér samrunasmakomulag. Þar hafi verið fjallað um ákveðin ákvæði sem lúta að Hitaveitu Suðurnesja. „Í ljósi þess að við gerðum hluthafasamkomulag í sumar, þessir aðilar (stærstu eigendur HS), þá vildum við Hafnfirðingar ná fram þessum fundi til þess að þessir aðilar gætu skýrt í raun og veru á hvaða ferð þeir væru gagnvart hagsmunum og stefnu Hitaveitu Suðurnesja," segir Gunnar.Ráðgjafar vinna skýrsluAðspurður hvort tekin hafi verið ákvörðun um hvort selja eigi hlut Hafnarfjarðar í Hitaveitu Suðurnesja segir Gunnar að Hafnarfjörður hafi tilboð frá Orkuveitu Reykjavíkur og fram komi í samrunasamkomulagi REI og Geysis Green Energy að ef Orkuveitan kaupi þann hlut renni hann inn í REI. „Við höfum verið að fara yfir það mál með ráðgjöfum og þeir hafa verið að vinna fyrir okkur skýrslu í þeim efnum og í ljósi þessara atburða þá þurfum við auðvitað einfaldlega að sjá hverju fram vindur og um leið að það er verið að boða löggjöf í þessum efnum öllum varðandi orkumálin þannig að við munum væntanlega í ljósi þess skoða okkar stöðu," segir Gunnar.Aðspurður um hugmyndir um að Reykjanesbær kaupi hlut Hafnarfjarðar í HS segir Gunnar að Reykjanesbær hafi ekki lýst yfir vilja til þess. Það sé forkaupsréttur inni í félaginu. Gengið hafi verið frá því í sumar í hluthafasamkomulagi að ef Hafnarfjörður gengi að tilboði Orkuveitunnar þá myndu hinir þrír hluthafarnir falla frá sínum forkaupsrétti. „Auðvitað verður líka að benda á það að Grindavík og Vogar og Sandgerði eiga eignarhlut í Hitaveitu Suðurnesja og í raun og veru gætu nýtt forkaupsréttinn hvenær sem er, jafnvel á þessum hlut sem Orkuveita Reykjavíkur er að setja inn í REI og þá öðrum hlutum sem fara á flakk í félaginu," segir Gunnar.Spurður um næstu skref í málinu segir Gunnar að fylgjast verði með hverju fram vindur varðandi málefni REI og samrunanna við Geysi Green Energy. „Eigum við ekki að bíða eftir nýrri borgarstjórn og nýjum borgarstjóra til þess að sjá hverju fram vindur. Við munum auðvitað bara hugsa fyrst og fremst um hagsmuni íbúa sveitarfélagsins inni í Hitaveitunni og um leið að hugsa um hagsmuni Hafnarfjarðar sem eignaraðila þarna inni," segir Gunnar og bætir við að fjórir stærstu eigendur HS muni áfram ræða saman um þessi mál.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Fleiri fréttir Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Sjá meira