Innlent

Borgarstjóri fær biðlaun í sex mánuði

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fráfarandi borgarstjóri, fær alls tæpar sjö milljónir króna í biðlaun eftir að hann lætur af embætti á morgun.

Samkvæmt upplýsingum frá Birgi Birni Sigurjónssyni, skrifstofustjóra starfsmannaskrifstofu Reykjavíkurborgar, miðast laun borgarstjóra við þau sem forsætisráðherra hefur og eru um 1,1 milljón á mánuði. Þessum kjörum mun Vilhjálmur halda næstu sex mánuðina, en fær ekki greidd borgarfulltrúalaun. Að sex mánuðum liðnum lækka laun hans og fær hann þá greitt eins og aðrir borgarfulltrúar.

Jón Kristinn Snæhólm, aðstoðarmaður borgarstjóra, mun að öllum líkindum einnig láta af störfum á morgun. Hann er með um 700 þúsund krónur í laun á mánuði og heldur þeim í þrjá mánuði eftir starfslok. Hann fær því rétt rúmlega tvær milljónir króna í biðlaun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×