Tekinn með 23.000 e-töflur í Leifsstöð 27. desember 2007 07:00 Þýskur karlmaður var gripinn glóðvolgur í Leifsstöð með 23 þúsund e-töflur.
Þýskur karlmaður á sextugsaldri var handtekinn á Keflavíkurflugvelli að kvöldi 22. desember síðastliðins með rúmlega 23.000 e-töflur í fórum sínum. Það er næstmesta magn e-taflna sem hald hefur verið lagt á hérlendis, og það mesta sem ætlað hefur verið á markað hér. Talið er að götuvirði efnanna sé um og yfir sextíu milljónir króna. Maðurinn kom til landsins frá Hamborg eftir millilendingu í Kaupmannahöfn. Efnin fundust við hefðbundið eftirlit tollgæslunnar á Suðurnesjum. Á Þorláksmessu var maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald til 14. janúar. Talið er öruggt að fleiri tengist málinu, þar á meðal Íslendingar. Lögreglan á Suðurnesjum, sem annast rannsókn málsins, verst allra frekari frétta af málinu. Lögregla telur efnið hafa verið ætlað til sölu á Íslandi og hefur þá aldrei áður verið lagt hald á jafnmikið af e-töflum hér sem fluttar eru til landsins í því skyni. Árið 2001 var Austurríkismaðurinn Kurt Fellner handtekinn við komuna frá Hollandi með 67.000 e-töflur í fórum sínum. Hann var hins vegar á leið til Bandaríkjanna með efnið og hugðist aðeins millilenda hér. Maðurinn fékk tólf ára fangelsisdóm í héraðsdómi en Hæstiréttur mildaði dóminn í níu ár. Fyrr á árinu fundust 1.800 e-töflur og fjórtán kíló af e-töfludufti auk 24 kílóa af amfetamíni um borð í skútu í Fáskrúðsfjarðarhöfn. Úr duftinu er talið að hægt hefði verið að framleiða um 140 þúsund e-töflur.- sh
Mest lesið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Innlent „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Innlent Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið Innlent Féll allt að tuttugu metra við foss á Snæfellsnesi Innlent Kettir drápust á meðan eigandinn var á ferðalagi Innlent Kominn undan feldi og svarið er nei Innlent Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Innlent Logar í yfirgefnum bústað við Elliðavatn Innlent Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Innlent Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna Innlent Fleiri fréttir Algjör samstaða sé um að hækka bætur Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“ Vildi fá hestinn endurgreiddan þar sem hann var með aukatönn Viðræður við Klíníkina, barátta stórvelda og Breiðholt Got Talent Óðinn Svan leiðir L-listann Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Tveir veiðimenn fengu tvær milljónir frá Hval Boðar tímabundna heimild svo unnt sé að senda erlenda fanga fyrr úr landi Kominn undan feldi og svarið er nei Féll allt að tuttugu metra við foss á Snæfellsnesi Bíða enn gagna mánuði frá upphafi rannsóknar Gagnrýnin byggi „að miklu leyti á misskilningi“ Framlag Íslands mun minna en annarra Norðurlanda Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið VG vex og býður á stefnumót og Vor til vinstri leitar að fólki Allt rykbindiefni búið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Bruninn látinn klára sig og vettvangur afhentur lögreglu Framlag Íslands hlutfallslega lítið og svifrykið hrellir borgarbúa Dorrit líkaði aldrei við „slepjulegan“ Epstein Tveggja bíla árekstur á Hellisheiði Fá sálfræðitíma en vilja bætur Yngra fólk líklegra til að strengja áramótaheit Kettir drápust á meðan eigandinn var á ferðalagi Ekki innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík í haust Logar í yfirgefnum bústað við Elliðavatn Bæjarstjórinn einn á móti stækkun friðlýsingar Gróttu og Seltjarnar Líkamsárásir, þjófnaðir og fíkniefnabrot Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Sjá meira