Innlent

Eskimo bregst við umfjöllun um átröskun

Andrea Brabin framkvæmdastjóri Eskimo
Andrea Brabin framkvæmdastjóri Eskimo

Eskimo vill koma eftirfarandi yfirlýsingu á framfæri vegna umfjöllunar í fjölmiðlum um heimildarmynd um veikindi ungrar stúlku sem þjáist af átröskunarsjúkdómi.

"Þau 11 ár sem Eskimo hefur starfað höfum við stutt við heilbrigt líferni og hollt mataræði hjá okkar skjólstæðingum. Eskimo hefur m.a. staðið fyrir fyrirlestrum um átröskun á sjálfstyrkinga- námskeiðum Eskimo í samstarfi við þá sem best þekkja til, t.d. Forma - félag átröskunarsjúklinga.

Mikil viðhorfsbreyting hefur orðið innan tískuiðnaðarins á undanförnum árum til átröskunarsjúkdóma. Áhugi margra af helstu tískuhönnuðum heims á mjög grönnum fyrirsætum var lengi svartur blettur á tískuheiminum, en margir áhrifamestu aðilarnir í greininni hafa sagt þeim viðhorfum stríð á hendur.

Arna Þórsdóttir starfar ekki sem fyrirsæta hjá Eskimo og hefur aldrei gert. Eskimo leitar hins vegar að fólki í auglýsingar og myndatökur af ýmsu tagi alla daga og því er alls ekki óeðlilegt að starfsmaður Eskimo hafi á einhverjum tíma haft samband við Örnu, eins og þúsundir annarra á undanförnum árum.

Við fögnum allri umræðu um þennan hræðilega sjúkdóm og vonum að heilbrigðiskerfinu verði gert kleyft að sinna betur þörfum þeirra sem þjást af átröskun og aðstandenda þeirra.

Við óskum Örnu góðs bata og hörmum veikindi hennar."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×