Innlent

Tilboð í landbúnaðartollkvóta töluvert lægri með nýjum reglum

MYND/GVA

Tilboð í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Evrópusambandslöndum voru allt að 66 prósentum lægri nú en í vor þegar slíkir kvótar voru síðast boðnir út. Þetta kemur fram í tilkynningu frá landbúnaðarráðuneytinu.

Þar segir einnig að í Einar K. Guðfinnsson landbúnaðarráðherra hafi í sumar breytt fyrirkomulagi útboðsins eftir að í ljós kom í vor að nokkur brögð voru að því að fyrirtæki byðu háar upphæðir í tollkvótann en innleystu svo ekki kvótann. Þannig bauð eitt fyrirtæki 207 milljónir króna í kvóta án þess að nýta hann en það leiddi til þess að neytendur fengu ekki að full notið aukins vöruúrvals eða betri viðskiptakjara.

Með breytingum landbúnaðarráðherra þurftu fyrirtæki að skila ábyrgðaryfirlýsingu banka, sparisjóðs eða vátrygginarfélags þar sem fram kæmi að þessir aðilar tryggðu að tilboðgjafi stæði við tilboð sitt. Þá þarf tilboðsgjafi að leysa út tollkvótann innan viku frá því að niðurstöður útboðsins liggja fyrir, annars er landbúnaðarráðherra heimilt að bjóða næstbjóðanda hann.

Í lok síðustu viku fór fram endurúthlutun á ESB-tollkvótanum á grundvelli þessara nýju reglna. Alls bárust nítján tilboð ái tollkvótan en sjö fyrirtækjanna sem buðu uppfylltu ekki útboðsreglur varðandi ábyrgðaryfirlýsingu.

Þá segir landbúnaðarráðuneytið að í útboðinu hafi komið greinilega í ljós að fyrirtækin vönduðu sig betur og voru tilboðin einnig umtalsvert lægri en hafði verið í fyrri útboðum. Heildarfjárhæð útboðsins nam 144 milljónum króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×