Innlent

Glitnir ásælist Þeistareyki

Landsvirkjunarmenn og Húsvíkingar fóru í hart í vor gegn áformum Akureyringa um að hleypa Glitni að jarðhitanýtingu Þeystareykja. Landsvirkjun óttaðist að missa forystuhlutverk sitt og Húsvíkingar að orkuöflun vegna álvers á Bakka yrði ógnað.

Glitnir er í gegnum eign sína í Geysi Green Energy þegar orðinn aðili að orkulindum Hitaveitu Suðurnesja. Þessi alþjóðlegi fjárfestingarisi ásælist nú Þeistareyki, eitt verðmætasta jarðhitasvæði landsins, sem talið er geta staðið undir mikilli orkuöflun. Þegar umræður hófust um álver við Húsavík stofnuðu heimamenn samnefnt hlutafélag um nýtingu svæðisins og fengu Landsvirkjun í lið með sér, sem á 32 prósenta hlut, eins og Orkuveita Húsavíkur og Norðurorka á Akureyri. Landeigendur, Norðurþing og Aðaldælahreppur, eiga litla hluti. Akureyringar hugðust í vor færa hlut Norðurorku yfir í annað félag, Fallorku, og hófu viðræður um að fá Glitni inn í það félag, en á sama tíma var Glitnir einnig að falast eftir að komast inn í Orkuveitu Húsavíkur.

Þessum áformum Glitnis og Akureyringa var hins vegar ekki vel tekið og bæði Landsvirkjun og Húsvíkingar settu þeim stólinn fyrir dyrnar, með því að hóta að nýta forkaupsrétt, sem þau töldu að yrði virkur. Samkvæmt upplýsingum Stöðvar tvö óttaðist Landsvirkjun að hún missti forystuhlutverk í nýtingu jarðhitans á Þeistareykjum og taldi mikilvægt í ljósi eignar sinnar á Kröfluvirkjun og áformaðrar jarðhitanýtingar í Gjástykki og Bjarnarflagi að hún héldi einnig Þeistareykjum á sinni könnu, til að tryggja hámarks hagkvæmni í orkuöflun vegna álvers við Húsavík.

Að sama skaði óttuðust Húsvíkingar að átök um eignarhald í Þeistareykjum gætu skaðað álversáformin. Akureyringar hafa hins vegar ekki útilokað að fá Glitni inn og segir bæjarstjórinn að málið sé í biðstöðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×