Innlent

Reyndi að eignast hlut í einu verðmætasta háhitasvæði landsins

Glitnir freistaði þess í vor að eignast stóran hlut í Þeistareykjum ehf., sem hefur nýtingarrétt á einu verðmætasta háhitasvæði landsins. Akureyringar opnuðu á viðræður um sölu en Húsvíkingar og Landsvirkjun snerust gegn áformunum. Málið er nú í biðstöðu.

Þeistareykir eru á milli Húsavíkur og Mývatns og þar hefur mælst heitasta borhola landsins. Nýting svæðisins er í höndum einkahlutafélagsins Þeistareykja en að því standa Orkuveita Húsavíkur, Norðurorka á Akureyri, Landsvirkjun og landeigendur, sem eru sveitarfélögin Aðaldælahreppur og Norðurþing.

Samkvæmt heimildum Stöðvar tvö leitaði Glitnir eftir því bæði við Akureyringa og Húsvíkinga að komast inn í orkufyrirtæki þeirra. Þegar Akureyringar tilkynntu svo meðeigendum sínum í Þeistareykjum í vor að þeir hygðust færa 32 prósenta hlut Norðurorku yfir í annað félag, Fallorku, brugðust bæði Landsvirkjun og Húsvíkingar við með því að lýsa því yfir að forkaupsréttur þeirra yrði við þetta virkur og hann yrði nýttur enda töldu þessir aðilar víst að tilgangur Akureyringa væri að selja Glitni hlut í Fallorku.

Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri Akureyrar, staðfesti í morgun að viðræður hefðu átt sér stað við Glitni og að hugmyndin hefði verið sú að Glitnir myndi eignast minnihluta í Fallorku. Málið væri hins vegar í biðstöðu og bærinn vildi flýta sér hægt.

Sveitarstjóri Norðurþings, Bergur Elías Ágústsson, sagði í morgun að banki hefði leitað eftir kaupum á Orkuveitu Húsavíkur, sem eins og Landsvirkjun og Norðurorka á 32 prósent í Þeistareykjum, en Orkuveitan væri ekki til sölu.

Árni Magnússon, framkvæmdastjóri orkusviðs Glitnis, kvaðst í morgun ekki tjá sig um málefni einstakra viðskiptavina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×