Innlent

Minnihluti höfuborgarbúa á nagladekkjum í vetur

Nagladekkin virðast vera á hröðu undanhaldi í borginni.
Nagladekkin virðast vera á hröðu undanhaldi í borginni. MYND/Róbert

Útlit er fyrir að innan við helmingur íbúa á höfuðborgarsvæðinu verði á nagladekkjum í vetur ef marka má könnun sem unnin var fyrir framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar í haust.

Á vef sviðsins kemur fram að 46 prósent telji mjög eða fremur líklegt að þeir setji nagladekk undir bíla sína en en 52 prósent telja það mjög eða fremur ólíklegt.

Bent er á að þetta sé í fyrsta sinn sem hlutfall nagladekkja mælist undir 50 prósentum í Reykjavík en til samanburðar óku 52 af hundraði á nagladekkjum veturinn 2005-2006 samkvæmt viðhorfskönnun sem gerð var vorið 2006.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×