Innlent

hvað er rio tinto?

Rio Tinto er eitt stærsta námu­fyrirtæki heims og hefur höfuð­stöðvar á Bretlandseyjum og í Ástralíu. Með kaupunum á Alcan verður til stærsta álfyrirtæki í heimi.

Umhverfisverndarhópar og samtök hafa oft lýst yfir áhyggjum vegna starfsemi Rio Tinto. Sérstaklega hefur verið fundið að umhverfis­sjónarmiðum, öryggismálum og réttindum verkamanna í námum.

Rio Tinto hefur sætt harðri gagn­rýni fyrir að valda gríðarlegum umhverfisspjöllum við námur í Nýju Gíneu. Einnig hefur fyrirtækið verið sakað um að stuðla að borgara­styrjöld í Bougainville í Nýju Gíneu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×