Gísli Marteinn verður mér innan handar 13. janúar 2007 11:30 Ragnhildur Steinunn Kynnir keppendur í Eurovision-forkeppni Sjónvarpsins.
Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur hefur verið úthlutað hið vandasama verk að vera kynnir í undankeppni Sjónvarpsins fyrir Euro-vision en fyrsta undankvöldið verður á dagskrá eftir viku. „Ég er enginn Gísli Marteinn eða Logi Bergmann,“ svarar Ragnhildur þegar hún er spurð hvort Euro-vision sé mikið áhugamál hjá sér. „Er svona meðalmanneskja í þessu,“ bætir hún við. Ragnhildur gerði sér fyllilega grein fyrir því að hún mætti varla misstíga sig í beinni útsendingu því þá fengi hún öll Eurovision-nördin á bakið. „Núna fer ég bara að grennslast fyrir í bókum og gömlum keppnum og reyni að finna einhverja gullmola sem ekki hafa verið sagðir áður þótt það verði vissulega erfitt,“ segir Ragnhildur sem á þó eftir að nýta sér krafta áðurnefnds Gísla Marteins. „Fáir ef einhverjir eru jafn vel að sér í þessum fræðum og hann,“ bætir hún við. Ragnhildur verður ein á sviðinu og tekur við keflinu af Garðari Thór Cortes sem nú hefur tekið Bretland með trompi og leikkonunni Brynhildi Guðjónsdóttur en parið vakti mikla athygli fyrir líflega framkomu í fyrra. Ragnhildur Steinunn hefur haft í nógu að snúast að undanförnu því auk þess að vera í Kastljósinu er hún að útskrifast úr sjúkraþjálfun í Háskólanum. Þá leikur hún aðalhlutverkið í kvikmyndinni Astrópíu en Ragnhildur sagðist ekki enn vera farin að stressa sig fyrir frumsýninguna enda fer myndin ekki í sýningar fyrr en í sumar. „Ég er ekki enn farin að leiða hugann að því en í júní verð ég örugglega komin með hnút í magann,“ segir Ragnhildur.
Mest lesið Frægustu mágar landsins Lífið Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Lífið Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Lífið Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð Lífið Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Lífið Ocasio-Cortez á lausu Lífið Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Lífið samstarf Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Lífið Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Lífið samstarf OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Sjá meira