Finnur fyrir kaldri hönd dauðans 4. febrúar 2007 11:30 Þorsteinn Guðmundsson kemst aldrei hjá því að halda upp á afmælið sitt en segir það eftirminnilegasta hafa verið þegar hann varð þrítugur. „
Ég hef vitað af þessu í dágóðan tíma, þannig þetta kemur ekkert aftan að mér, segir Þorsteinn Guðmundsson leikari, spaugari og rithöfundur sem fagnar fertugasafmæli í dag. Þorsteinn var við uppvask þegar Fréttablaðið truflaði hann enda von á gestum um helgina. „Þetta verður bara klassískt: opið hús fyrir fjölskylduna og svo var partí fyrir vinina á laugardagskvöld. Ég hélt partíið kvöldið fyrir afmælisdaginn þar sem ég held yfirleitt slíkar svallveislur að fólk kemst ekkert í vinnu daginn eftir.“ Þorsteinn kippir sér ekkert upp við það þótt fertugsaldurinn sé að líða undir lok en gerir sér óneitanlega grein fyrir að hann er ekki ódauðlegur. „Maður finnur óneitanlega fyrir hinni köldu hönd dauðans en ég sinni bara mínu daglega amstri, reyni að kveðja lífið á fallegan hátt með því að gera þennan heim örlítið bærilegri.“ Afmælisdagarnir eru yfirleitt í hávegum hafðir heima hjá Þorsteini enda segist hann ekki komast upp með annað. „Þegar maður á börn þýðir ekki að vera með neitt múður, þetta er miklu skemmtilegra fyrir þau en mig. Svo umgengst ég líka mikið af barnalegu fólki og enda alltaf á því að bjóða öllum heim.“ Af liðnum afmælisdögum segir Þorsteinn hinn þrítugasta standa upp úr. „Þá hélt ég líka voða grand grímuball þar sem mátti sjá mikið af frumlegum búningnum, til dæmis mætti mamma í gervi Frelsisstyttunnar. En þetta verður með hefðbundnara sniði í ár, enda ég orðinn svo þroskaður og yfirvegaður með árunum.“
Mest lesið Frægustu mágar landsins Lífið Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð Lífið Ocasio-Cortez á lausu Lífið OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Lífið Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Lífið Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Lífið Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Lífið Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Lífið Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Lífið samstarf María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu Tíska og hönnun Fleiri fréttir Keppendur Eurovision verði að vera orðnir átján ára Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Sjá meira