Vilja ganga sem fyrst frá sölu Hitaveitu Suðurnesja 4. september 2007 20:40 Haraldur Þór Ólason, oddviti sjálfstæðismanna í Hafnarfirði.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ákvað í dag að fresta tilllögu fulltrúa Sjálfstæðisflokks um að bærinn seldi hlut sinn í Hitaveitu Suðurnesja til Orkuveitu Reykjavíkur. Oddviti sjálfstæðismanna segir brýnt að bærinn gangi sem fyrst frá sölunni. „Það var kominn tími til að ýta við þessu ferli," sagði Haraldur Þór Ólason, oddviti Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn Hafnarfjarðar, í samtali við Vísi. „Við viljum að hluturinn verði seldur sem fyrst." Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu til á bæjarstjórnarfundi í dag að bærinn seldi hlut sinn í Hitaveitu Suðurnesja til Orkuveitu Reykjavíkur. Tillagan er í samræmi við samkomulag sem bæjaryfirvöld í Hafnarfirði, Reykjanesbæ og Grindavík gerðu með sér í júlímánuði síðastliðnum. Söluverðmæti hlutar Hafnarfjarðar í Hitaveitu Suðurnesja nemur um 8 milljörðum króna. Meirihlutinn ákvað þó að fresta afgreiðslu tillögunnar. Að sögn Haraldar er mikilvægt að gengið sé frá sölunni sem fyrst. Hann segir lítinn tilgang í því að fresta málinu þar sem verðmæti hlutar bæjarfélagsins í hitaveitunni eigi ekki eftir að hækka. „Það er best að selja sem fyrst og svo hægt sé að ávaxta andvirði sölunnar." Í tillögu Sjálfstæðismanna er einnig gert ráð fyrir því að andvirði sölunnar sé notað til að greiða niður skuldir bæjarfélagsins og lækka útsvar og fasteignaskatta bæjarbúa.
Mest lesið „Unglingadrykkjan virðist vera orðin norm“ Innlent „Tesla er ekki málið til að standa í svona“ Innlent Trump gerir aðför að stjórn Seðlabankans Erlent „Ég segi bara að þögn er sama og samþykki“ Innlent Örlög Bayrou ráðast 8. september Erlent „Nokkur fjöldi“ ísjaka 16 kílómetrum frá Tröllaskaga Innlent Skjálfti við Húsavík Innlent „Ég er fimmtíu kíló, ég get ekki stoppað hann“ Innlent „Hann var hræddur, eiginlega alveg skíthræddur“ Innlent „Það er sú aðgerð sem mun hraðast slá á þetta misræmi“ Innlent Fleiri fréttir Skjálfti við Húsavík Byssan reyndist leikfang „Það er sú aðgerð sem mun hraðast slá á þetta misræmi“ „Nokkur fjöldi“ ísjaka 16 kílómetrum frá Tröllaskaga „Ég segi bara að þögn er sama og samþykki“ „Unglingadrykkjan virðist vera orðin norm“ Staðan ekki alvarleg í Haukadalsá Loka Bröttubrekku í tvo daga „Tesla er ekki málið til að standa í svona“ Minntust Jesse í Vesturbænum: „Það er mikill söknuður að virkilega góðum dreng“ Skýr mynd dregin upp í dómsal og minningarstund Hækkar frítekjumark vegna hækkunar örorkulífeyris „Hann var hræddur, eiginlega alveg skíthræddur“ Kjaraviðræður Sinfó „stefni í rétta átt“ Stöðupróf verði skylda í öllum skólum strax í vor „Ég er fimmtíu kíló, ég get ekki stoppað hann“ Núverandi staða ekki talin vera alvarleg Vön því að hringja í fullorðna karlmenn á fölskum forsendum Opna Vesturbæjarlaug á morgun en Sundhallargestir þurfa að bíða Tilgangurinn að ná í „easy money“ Jökulhlaupið í rénun Í beinni frá héraðsdómi, unglingadrykkja og áheitakóngur Aldrei kynnst neinum sem harkaði jafnmikið af sér Hættir sem ritstjóri Kveiks Hættir hjá borgarstjóra og aðstoðar nú ráðherra Meirihluti hefur áhyggjur af laxastofninum nema í fjörðunum Jóhann tekur við af Gunnari hjá Landssambandi veiðifélaga Skýrslur teknar af tíu börnum undir sex ára á síðustu 20 árum Lögregla kölluð til vegna einstaklinga sem tjölduðu í skógarrjóðri Betra að borga tryggingarnar en að sitja uppi með allsherjartjón Sjá meira