Meiri umferðarteppur í borginni en nokkru sinni 4. september 2007 19:03
Meiri umferðateppur eru nú í borginni kvölds og morgna en nokkru sinni fyrr. Allir ætla sér að mæta á hárréttum tíma eftir að skólarnir hófu störf að nýju eftir sumarfrí. Þetta virðist sprungið gatnakerfið ekki þola. Bílalestin hefur legið einsog lakkrísreim nánast frá mótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar upp í Árbæjarhverfi annars vegar og eftir Reykjanesbrautinni langleiðina upp í Breiðholt hins vegar. Björg Helgadóttir hjá Reykjavíkurborg segir að meðalhraðinn hafi farið niður í 30 kílómetra á klukkustund í morgun á helstu æðum borgarinnar. Hann fór það niður klukkan átta í morgun að vegalengd sem venjulega er farin á 12 mínútum var farin á 45 mínútum. Á sjöunda þúsund bílar óku niður Ártúnsbrekkuna milli klukkan 7 og 9 í morgun. Mesta álagið var þegar níu hundruð bílar sátu fastir í brekkunni. Ökumenn voru mjög óþreyjufullir og margir komu of seint til vinnu í morgun og í skóla. Augljóst er að miklu fleiri bílar voru á götunum í morgun en verið hefur í sumar. Mikið ber á því að foreldrar séu að aka börnum sínum í skólann og nemendur framhaldskólanna voru margir á fullri ferð í einkabílum þrátt fyrir að strætó bjóði nú ókeypis ferðir með vögnum sínum fyrir þennan hóp. Bílastæðin voru gjörnýtt í morgun við framhalsskólana. Ljóst er að nemendur í MR eru afskaplega samvinnuþýðir í að samnýta það litla rými sem þeir hafa fyrir hverja bifreið. Þeir lögðu bílum sínum þannig að samvinna margra ökumanna varð að koma til að gera hverjum og einum ökumanni kleift að komast af bílastæðinu.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira