Dagdeild opnuð við líknardeildina í Kópavogi 4. september 2007 16:59
Félagar í Oddfellow-reglunni á Íslandi færðu í dag Landspítalanum dag-, göngu- og fimm daga deild fyrir sjúklinga á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Slíkt er nýjung í starfsemi líknardeildar. Stórsír Oddfellow-reglunnar á Íslandi, Gylfi Gunnarsson, afhenti húsnæðið við hátíðlega athöfn í dag og tók Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra við framlagi Oddfellow-reglunnar fyrir hönd spítalans og færði gefendum þakkir fyrir höfðinglegt framlag. Fram kemur í tilkynningu frá Landspítalanum að í tilefni af 100 ára afmæli Oddfellowreglunnar árið 1997 hafi reglan ákveðið að veita fé til uppbyggingar líknardeildar Landspítalans í Kópavogi. Með sameiginlegu átaki spítalans og hennar var deildin opnuð í apríl 1999 og hefur farsæld fylgt starfsemi hennar frá upphafi. Í byrjun sumars 2003 afhenti Oddfellowreglan líknardeildinni fullbúna kapellu í húsnæði við hlið deildarinnar. „Enn á ný hefur Oddfellowreglan á Íslandi sýnt stórhug í verki, nú með því endurnýja ónotað húsnæði við hlið líknardeildarinnar þar sem rekin verður dagdeild fyrir þá einstaklinga sem þiggja líknandi meðferð og dvelja heima. Á dagdeildinni verður lögð áhersla á forvarnarstarf, meðferð og eftirlit einkenna ásamt endurhæfingu til að viðhalda sjálfsbjargargetu og stuðla að sem mestum lífsgæðum," segir tilkynningu Landspítalans. Dagdeildin verður til að byrja með opin 3 daga í viku frá kl. 9-16. Einnig verður göngudeild opin einn morgun í viku með það að markmiði að stuðla að tengslum sjúklinga við sérhæfða líknarþjónustu fyrr í sjúkdómsferlinu. Síðar í haust hefst starfsemi 5 daga deildar sem verður opin mánudaga til föstudaga og mun starfsemi hennar auka möguleika á hvíldarinnlögnum og styttri legum til endurhæfingar og meðferðar erfiðra einkenna.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent Fleiri fréttir Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Sjá meira