Að minnsta kosti 1500 athugasemdir vegna hafnarsvæðis á Kársnesi 4. september 2007 15:50 Athugasemdirnar afhentar í gær. „
Þetta fer fram úr okkar björtustu vonum," segir Arna Harðadóttir, formaður Betri byggðar á Kársnesi, en bæjaryfirvöldum í Kópavogi bárust að minnsta kosti 1500 athugasemdir vegna skipulagstillögu á hafnarsvæði á Kársnesi. Athugasemdafrestur vegna tillagnanna rann út í gær. „Bjartsýnustu menn bjuggust við því að um 500 athugasemdir bærust og við töldum að það yrði stórkostlegt ef þær væru 1000," segir Arna. Samtökin Betri byggð á Kársnesi berjast gegn tillögum bæjaryfirvalda og opnuðu meðal annars þjónustuver til að aðstoða íbúa við að gera athugasemdir við skipulagstillöguna. Fram kemur í tilkynningu frá samtökunum að um 800 athugasemdir hefðu safnast í þjónustuverinu. Þá gafst íbúum einnig tækifæri á að póstleggja eða afhenda athugasemdir upp á gamla mátann og segja samtökin að samkvæmt upplýsingum frá bæjarskipulaginu hafi um 700 slíkar athugasemdir borist. Þá séu ótaldar athugasemdir sem séu ókomnar í pósti eða hafi verið lagðar inn hjá bæjarskipulaginu. Segja samtökin Betri byggð á Kársnesi að ljóst megi vera að heildarfjöldi athugasemda verði hátt á annað þúsund, ef ekki meiri. Segja um að ræða fjölmennustu mótmæli í skipulagsmálum Kópavogs Bent er á að fleiri enn einn maður geti undirritað hverja athugasemd þannig að ekki liggi fyrir hversu margir hafi látið sig málið varða. Hins vegar sé ljóst að þetta séu flestu andmæli sem Kópavogsbæ hafi borist og metfjöldi með hliðsjón af því að á Kársnesi búa um 4.400 manns. Þá sé ekki vitað til þess að nokkru sveitarfélagi hafi borist hlutfallslega jafn margar athugasemdir við einni og sömu skipulagstillögunni. „Ég tel að þetta séu mjög skýr skilaboð um að draga hugmyndirnar til baka, bæði stækkun atvinnusvæðisins á Kársnesi og hafnarinnar. Fólk hefur ekki áhuga á þessu," segir Arna. Skipulagstillögurnar fyrir hafnarsvæðið eru hluti af rammaskipulagi á Kársnesi þar sem gert er ráð fyrir aukinni atvinnustarfsemi og íbúðarhúsnæði. Arna segir að fjöldi athugasemda sé einnig til marks um mjög skýran vilja fólks til að endurskoða rammaskipulagið. „Umferðarmannvirkin eru sprungin nú þegar. Það er bara ekki pláss fyrir meiri umferð," segir Arna.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Fleiri fréttir „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Sjá meira