Innlent

Skora á stjórnvöld að bæta kjör öryrkja

Heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytunum hafa í dag borist tölvupóstar þar sem skorað er á íslensk stjórnvöld að leiðrétta þegar í stað kjör öryrkja og aldraðra til samræmis við íslenskan veruleika.

Tölvupóstar hafa síðustu daga gengið manna á milli þar sem fólk er hvatt til að senda áskorunina á ráðuneytin í dag. Ástæðan er veikindi tveggja kvenna með ólæknandi krabbamein sem búa við tekjuskerðingu vegna veikinda sinna og telja ríkið lítið koma til móts við sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×