Snjóflóðum komið af stað með sprengingum 1. nóvember 2007 19:14
Snjóflóðum verður komið af stað með sprengingum á Vestfjörðum í vetur. Kanna á hvort hægt sé að nota þessa aðferð við snjóflóðaeftirlit. Farið var af stað með verkefnið fyrir um ári og voru þrjár tilraunir gerðar síðasta vetur. Það er Snjóflóðasetur Veðurstofu Íslands sem stendur fyrir verkefninu og nýtur til þess aðstoðar sprengjusérfræðings. Sprengingar eru víða notaðar erlendis við snjóflóðaeftirlit en þetta er í fyrsta sinn sem þetta er gert hér á landi. Harpa Grímsdóttir, forstöðumaður Snjóflóðasetursins, segir að allar tilraunir séu gerðar langt frá mannabyggð og því ætti engum að stafa hætta af. Sprengingar hafa meðal annars verið notaðar erlendis til að koma af stað snjóflóðum við vegi og á skíðasvæðum. Snjóflóðum er þá komið af stað í litlum skömmtum en þannig er komið í veg fyrir stærri flóð. Harpa segir einnig hugsanlegt að nota sprengingar til að sjá hvort rýma þurfi ákveðin svæði. Það yrði þá gert þannig að sprengt yrði á svæði nærri rýmingarsvæðinu, þar sem engin byggð er en aðstæður eru sambærilegar og á rýmingarsvæðinu. Þannig er hægt að sá hversu stöðugt svæðið er. Vonast er til að hægt verði að gera tvær til fjórar tilraunir í vetur. Kanna á dýpri farvegi og þannig reyna að koma af stað stærri flóðum en gert var í fyrra.
Mest lesið Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Erlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Skiluðu hagnaði á kosningaári Innlent Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira