Innlent

Tatjana Lationovic hlýtur húmanistaviðurkenningu Siðmenntar

Hope Knútsson og Tatjana Lationvic.
Hope Knútsson og Tatjana Lationvic. MYND/Siðmennt

Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, hefur ákveðið að veita Tatjönu Latinovic húmanistaviðurkenningu ársins 2007.

Fram kemur í tilkynningu frá Siðmennt að viðurkenninguna hljóti Tatjana fyrir óeigingjarnt starf í þágu mannréttinda á Íslandi. Tatjana hefur í áratug unnið að mestu í sjálfboðastarfi við málefni sem snerta mannréttindi, kvenréttindi og innflytjendamál. Einnig hefur hún tekið virkan þátt í uppbyggingu fjölmenningarlegs samfélags á Íslandi.

Þetta er þriðja skiptið sem Siðmennt veitir húmanistaviðurkenninguna. Árið 2005 fengu Samtökin 78 viðurkenninguna og í fyrra Ragnar Aðalsteinsson, hæstaréttarlögmaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×