Innlent

Einn úr Fáskrúðsfjarðarmáli áfram í gæsluvarðhaldi

Einn þeirra fjögurra manna sem sitja í gæsluvarðhaldi í tengslum við svokallað Fáskrúðsfjarðarmál hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 8. nóvember vegna rannsóknarhagsmuna. Þetta kemur fram á vef lögreglunni.

Tveir aðrir sitja í gæsluvarðhaldi til 8. nóvember vegna almannahagsmuna og einn til viðbótar er í gæsluvarðhaldi til 29. nóvember vegna almannahagsmuna. Fimmti maðurinn sem handtekinn var og sat í varðhaldi hefur hafið afplánun dóms vegna annars máls.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×