Húsleit í klúbbhúsi Fáfnismanna 1. nóvember 2007 16:49
Lögreglan í Reykjavík gerði húsleit í klúbbhúsi Fáfnismanna við Frakkastíg fyrir hálftíma síðan. Voru um tuttugu sérsveitarmenn sem brutust inn í húsið þar sem Jón Trausti Lúthersson meðlimur samtakanna var innan dyra. Ekki er vitað á þessari stundu hverju lögreglan var að sækjast eftir en orðrómur hefur verið um komu meðlima hinnar alræmdu mótorhjólaklíku Hells' Angels hingað til lands um helgina. Fjórir kolsvartir ómerktir sendibílar komu eins og þruma úr heiðskíru lofti um klukkan 16:15 og gerðu strax atlögu að húsinu sem er vel girt af með gaddavírsgirðingum og einum stórum gám. Ruddist lögreglan inn um þrjá innganga á húsinu og var með múrbrjót til þess að brjóta sér inngöngu. Einnig var lögreglan með skildi og var greinilegt að sérsveitin var mætt á staðinn. Nokkuð greiðlega gekk að komast inn í húsið og var götunni lokað á meðan. Nokkur umferð hafði verið til og frá húsinu klukkutíma áður en lögreglan réðst inn og svo virðist sem einungis Jón Trausti hafi verið inni í húsinu þegar lögreglan mætti. Skömmu áður en lögreglan mætti á staðinn kom hvellhetta út um glugga klúbbhússins og sprakk í nálægum bakgarði. Klúbbhús Fáfnismanna hefur ekki vakið mikla lukku nágranna og samkvæmt heimildum Vísis hefur lögreglan tvisar ráðist til atlögu í húsinu. Fyrst í desember í fyrra og aftur í sumar. Uppákoman náðist á myndband og er von á því inn á Vísi innan skamms.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira