Myndband: Vopnuð víkingasveit ræðst inn í mótorhjólaklúbb 1. nóvember 2007 17:06
Húsleit lögreglunnar í klúbbhúsi bifhjólaklúbbsins Fáfnis í dag náðist á myndband. Hægt er að sjá myndbandið hér á síðunni. Um tuttugu sérsveitamenn, gráir fyrir járnum, réðust inn í klúbbhúsið sem er á horni Hverfisgötu og Frakkastígs klukkan 16:15 í dag. Þar inni var Jón Trausti Lúthersson, einn forsprakka klúbbsins auk annars manns og voru þeir báðir handteknir. Eftir að lögreglan hafði ráðist inn í húsið komu á vettvang fjölmargir rannsóknarlögreglumenn. Þá voru fíkniefnahundar einnig leiddir inn í húsið. Heimildir Vísis herma að húsleitin hafi verið gerð vegna gruns lögreglunnar um að von sé á félögum úr bifhjólasamtökunum Hells Angels til landsins. Grunur leikur á að Fáfnir sé í tengslum við Hells Angels, sem eru á lista yfir hættulegustu glæpasamtök Norðurlanda. Það hefur rennt stoðum undir þennan grun að undanfarna daga hafa töluverðar framkvæmdir verið við klúbbhúsið. Braggi hefur verið reistur þar fyrir utan og öryggisgirðingar styrktar. Þá hefur öflugu öryggishliði verið komið þar fyrir og lóðin utan um klúbbhús Fáfnismanna því rammgirt. Samkvæmt heimildum Vísis hefur lögreglan tvisar ráðist til inngöngu í húsiið. Fyrst í desember í fyrra og aftur í sumar. Þar að auki hefur Vísir heimildir fyrir því að lögreglan hafi komið fyrir leynilegum eftirlitsmyndavélum til þess að fylgjast með ferðum til og frá klúbbhúsinu.
Mest lesið Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Bandarísk herflugvél fórst í Írak Erlent Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Innlent Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Innlent Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Erlent Áætla að 188 frelsissviptir útlendingar hefðu verið vistaðir í nýja úrræðinu Innlent Rannsaka hvernig tíðir og meðganga geta haft áhrif á Parkinson í konum Innlent Sporðamælingar í sjálfboðavinnu í 40 ár: Brasið alltaf dálítið eftirsóknarvert Innlent Landsréttur tók ekki heldur mark á lygilegri frásögn Innlent Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Innlent Fleiri fréttir Rannsaka hvernig tíðir og meðganga geta haft áhrif á Parkinson í konum Sporðamælingar í sjálfboðavinnu í 40 ár: Brasið alltaf dálítið eftirsóknarvert Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Áætla að 188 frelsissviptir útlendingar hefðu verið vistaðir í nýja úrræðinu Sigríður Ingibjörg ráðinn nýr framkvæmdastjóri BSRB Á annan tug ferðalanga fastir á Holtavörðuheiði Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Umdeild málsókn, sviptingar í fjölmiðlum og verðhækkanir Þó nokkur snjóflóð fallið og loka Flateyrarvegi í kvöld Fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir hópárás Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Sýkna Landsbankann af kröfum Quang Le Kristinn ekki bænheyrður Landsréttur tók ekki heldur mark á lygilegri frásögn Fimm ár fyrir stangir fullar af amfetamíni Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Umsókn Miðflokksins í klúbb evrópska íhaldsmanna ekki svarað Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Samtal hafið um Ísafjarðarflug Ferðamenn valdi fleiri slysum en ölvaðir eða ungir ökumenn Miðflokkur kynnir sex efstu í Garðabæ Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Norðanhríð fyrir vestan og Ísland í máli gegn Ísrael Þau eru á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Sjá meira