Innlent

Sjávarútvegsstefna ESB eins og stórskip

MYND/Hari

Sjávarútvegsstefna Evrópusambandsins er eins og stórskip, sagði Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra, á þingi Norðurlandaráðs sem lýkur í Osló í dag en sjávarútvegsmálin voru til umræðu á þinginu.

Hann sagði nausynlegt að hafa Norðurlöndin um borð til að hafa eftirlit með því að framfylgja stefnu ESB. Norrænir stjórnmálamenn eru ánægðir með væntanlega nýja sjávarútvegsstefnu ESB og þá ákvörðun sambandsins um að axla ábyrgð á ofveiði á höfum úti.

Ivar Kristiansen, fulltrúi norskra íhaldsmanna og umhverfisnefndar þingsins, ræddi um áföll í sjávarútveginum á borð við ofveiði, ólöglega veiði og óskráða veiði og sagði að allt hefði þetta leitt til niðurskurðar fiskkvótans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×