Spurning hvenær olíuverðið dregur úr sókn útgerða 1. nóvember 2007 10:41 "
Það fer að verða spurning hvenær síhækkandi olíuverð muni draga úr sókn útgerða í ákveðnar tegundir," segir Friðrik Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ í samtali við Vísir. "Í því sambandi má nefna orkufrekar veiðar eins og til dæmis kolmunnann. Við ákveðnar aðstæður nú er stutt í að þær borgi sig ekki vegna olíuverðsins." Eins og kunnugt er af frétt hér á síðunni er olíuverðið nú í 96 dollurum tunnan og stefnir óðfluga í 100 dollara. Þetta er um 40% hækkun bara frá því í sumar. Björgólfur Jóhannsson formaður LÍÚ kom inn á þetta í ræðu sinni á síðasta aðalfundi LÍÚ en þar greindi hann frá því að olíuverð til útgerða hefði hækkað um 135% frá 2003 og næmi nú um 14 milljörðum kr. á ári. Sveinn Hjörtur Hjartarsson hagfræðingur LÍÚ bendir á að veiking á dollar hefði vegið upp hátt olíuverð að nokkru marki en að verðið væri komið í "hættulegar hæðir" þessa stundina. Svein Hjörtur vitnar i umfjöllun í Vegvísi Landsbankans frá í síðustu viku þar sem fram kemur að olíuverðið sé við að ná þeim toppi sem það komst í við síðustu olíukreppu árið 1979 sé miðað við vísitölu neysluverðs í Bandaríkjunum. Friðrik Arngrímsson segir að það láti nærri að olíverð sem hlutfall af rekstri útgerða hafi farið frá 10% og upp í nær 20% nú um stundir. "Þetta er kostnaður sem útgerðin þarf að bæta á sig," segir Friðik. "Og það eru ekki aðrir kostir í stöðunni en olían. Ekki förum við að gera út með árabátum á ný."
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira