Kambur þegar selt hluta aflaheimildanna 21. maí 2007 18:30
Eigandi Kambs á Flateyri er þegar búinn að selja stóran hlut aflaheimilda sinna út af Vestfjarðasvæðinu. Bæjarstjórinn á Ísafirði reynir nú að stuðla að því að nokkrir útgerðaraðilar á norðanverðum Vestfjörðum kaupi það sem eftir er af heimildunum. Kambur á Flateyri, sem tilheyrir Ísafjarðarbæ, átti kvóta upp á 2.700 tonn. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar er fyrirtækið nú þegar búið að selja hluta af þessum aflaheimildum en ekki náðist í Hinrik Kristjánsson framkvæmdastjóra Kambs til að fá það staðfest. Halldór Halldórsson bæjarstjóri á Ísafirði segist ekki vita hvort búið sé að selja eitthvað af aflaheimildunum, það verði að spyrja forráðamenn Kambs að því. Nú sé unnið að því að útgerðarfélög á svæðinu geti keypt þessar heimildi. Halldór segir að bærinn vinni eftir þríþættri áætlun til að bregðast við þessari stöðu. Í fyrsta lagi sé reynt að bjarga því sem bjargað verði með því að reyna að stuðla að því að útgerðir á norðanverðum Vestfjörðum geti keypt heimildirnar. Þá hafi verið stofnaður teymishópur til að halda utan um þá 120 einstaklinga sem nú eru að missa vinnuna. Það miði að því að koma á námskeiðum og átaksverkefnum til að útvega fólkinu eitthvað að gera. Það verði að halda fólkinu í bænum. Ein leið til til að taka á vandanum gæti verið að Vestfirðir fengju úthlutað meiri byggðakvóta. Halldór segir að fyrst þurfi að koma í ljós hvað komi í hlut svæðisins við næstu úthlutun byggðakvóta. Halldór telur að reyna megi að fara svipaða leið og farin var á Þingeyri á sínum tíma þegar byggðakvóta var beint þangað til útgerðarfélagsins Vísis, sem þá hafi lagt til kvóta á móti. Halldór segir að beðið sé eftir nýrri ríkisstjórn til að heyra hvað hún hafi að segja um málið. Einnig þurfi að finna verkefni fyrir vinnsluhúsin á Flateyri, þar sem það myndi nýtast starfsfólkinu best vegna sérhæfðar þekkingar þess.
Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Innlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Erlent Fleiri fréttir Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Sjá meira