Innlent

Rauða ljónið verður dauða ljónið

Kráin Rauða ljónið fær ekki áfram starfsleyfi á Eiðistorgi á Seltjarnarnarnesi eftir því sem fram kemur á vef Seltjarnarnesbæjar. Þar segir að bæjaryfirvöld hafi ekki getað fallist á framlengingu veitingaleyfis fyrir staðinn á grundvelli upplýsinga lögreglu um ítrekuð brot á áfengislögum og settum skilyrðum fyrri leyfisveitinga. Þar segir enn fremur að með þessu hafi spilakassar einnig verið gerðir útlægir á Nesinu en þeir hafi lengi vel verið starfræktir á Rauða ljóninu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×