Innlent

Landsbjörg stendur í ströngu vegna rjúpnaveiðimanna

Björgunarsveitir Landsbjargar hafa staðið í ströngu vegna rjúpnaveiðimanna í uppsveitum Árnessýslu síðustu tvo sólarhringa.

Á þriðja tug manna var á fimmta tímanum í gær kallaður út til að leita rjúpnaveiðimanns sem ekki hafði skilað sér til veiðifélaga sinna. Maðurinn skilaði sér sjálfur eftir klukkutíma leit. Útköll í Árnessýslu frá því að rjúpnaveiðitímabilið hófst á fimmtudaginn eru orðin sex, flest vegna bíla sem hafa fest sig í aurbleytu.

Þegar fréttastofa Stöðvar 2 hafði samband við Bjarna Daníelsson, formann Björgunarsveitarinnar Ingunnar á Laugarvatni, í morgun vildi hann vara menn við því að fara út af aðalslóðum á hálendinu. Mikið hefur rignt í Árnessýslu undanfarið og þótt jörð sýnist frosin er aðeins um þunna skel yfir aurbleytu að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×